klassík, sígild og samtímatónlist, tónlist

Útgáfu­tón­leikar viibra

Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða

Verð

4.900 kr

Næsti viðburður

sunnudagur 26. maí - 21:00

Salur

Norðurljós

Flautuseptettinn viibra fagnar útgáfu sinnar fyrstu plötu með tónleikum sunnudaginn 26. maí í Norðurljósum Hörpu þar sem fjögur af verkum plötunnar verða frumflutt.

viibra er fyrsta plata septetsins og innihledur verk eftir meðlimi viibru, vini og samstarfsfólk. Á plötunni kannar septettinn margslunginn hljóðheim flautunnar í gegnum spuna og fjölbreytta nálgun í tónlistarsköpun.

viibra var stofnaður haustið 2016 að tilstuðlan Bjarkar í tengslum við gerð plötu hennar Utopia.
Á árunum 2018 til 2023 ferðaðist viibra með Björk víða um heim með hina
margrómuðu sýningu Cornucopia.

Margrét Bjarnadóttir danshöfundur og myndlistarkona hefur unnið með viibra að sviðshreyfingum í að verða sjö ár og sér um sviðsetningu á útgáfutónleikunum. Margrét hefur einstakt lag á að flétta saman hreyfingum við flautuleikinn og túlkar tónlistina á einstakan hátt.

Efnisskrá:
CD Players eftir Berglindi Maríu Tómasdóttur
kvoða eftir Berg Þórisson
Venutian Wetlands eftir Bergrúnu Snæbjörnsdóttur
Eyg eftir Björg Brjánsdóttur 

Meðlimir viibra:
Áshildur Haraldsdóttir
Berglind María Tómasdóttir
Björg Brjánsdóttir
Dagný Marinósdóttir
Sólveig Magnúsdóttir
Steinunn Vala Pálsdóttir
Þuríður Jónsdóttir

Margrét Bjarnadóttir vinnur innan ýmissa forma og ólíkra miðla, einkum á sviði dans, myndlistar og skrifa. Á meðal verka Margrétar er gítarballettinn No Tomorrow (2017) sem hún vann í samstarfi við Ragnar Kjartansson, tónskáldið Bryce Dessner og Íslenska dansflokkinn. Verkið hlaut m.a. Grímuverðlaun sem sýning ársins.

Margrét samdi einnig sviðshreyfingar fyrir tvær tónleikasýningu Bjarkar, Utopiu og síðar Cornucopiu sem frumsýnd var í The Shed í New York, vorið 2019 og ferðaðist um heiminn í fjögur ár.

Tónleikarnir eru framleiddir af marvöðu


Viðburðahaldari

marvaða

Miðaverð er sem hér segir:

A

4.900 kr.

Norðurljós

Þessi einstaki og fallegi salur á annarri hæð Hörpu hentar vel fyrir tónleika, ráðstefnur, sýningar, árshátíðir og hvers kyns mannamót.