Tónlist, Bíótónleikar

“Með allt á hreinu” – Kvikmyndatónleikar
Verð
6.990 - 14.990 kr
Næsti viðburður
föstudagur 11. nóvember - 20:00
Salur
Eldborg
Vegna áframhaldandi óvissu og afleiðinga heimsfaraldurs hefur tónleikunum verið frestað.
Ný dagsetning er 11. nóvember 2022. Miðhafar fá frekari upplýsingar sendar í tölvupósti
Í tilefni 40 ára afmælis vinsælustu kvikmyndar Íslandssögunnar verður meistaraverkið Með allt á hreinu sýnt á risatjaldi í Eldborg Hörpu, með lifandi tónlistarflutningi Stuðmanna sjálfra.
Ekki láta einstakan viðburð fram hjá þér fara.
Myndin verður sýnd í stórbættum hljóð- og myndgæðum og textar birtast undir sönglögum.
Fram koma:
STUÐMENN í
öllu sínu veldi.
Umsjón: Móðurfélagið ehf.
Dúddi: Lásinn er... humm... lásinn er inn út, inn inn út.
Harpa Sjöfn: Hvernig á ég að geta sungið lagið, þetta er ómöguleg tóntegund. Ég syng lengst upp í rassgati.
Sigurjón Digri:Takið af ykkur skónna! Hvað ertu að bóna?
Dúddi: Hér er strax komin ungur maður, virkilega gott samband í kvöld.
Harpa Sjöfn: Þú einblínir alltaf á flísina en tekur ekki notice af bjálkanum.
Miðaverð er sem hér segir:
A
13.990 kr.
B
12.990 kr.
C
9.990 kr.
D
6.990 kr.
X
14.990 kr.
Dagskrá
Eldborg
Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn tekur allt að 1600 manns í sæti. Í Hörpuhorni, við glerhjúpinn á annarri hæð, er unnt að vera með standandi kaffiveitingar eða móttökur tengdar Eldborg.

Hápunktar í Hörpu