Tónlist, Klassík

Æskuverk með Baibu og Harriet – Sinfóníuhljómsveit Íslands
Verð
3.900 kr
Næsti viðburður
föstudagur 18. nóvember - 18:00
Salur
Norðurljós
Hljóðfæraleikarar úr Sinfóníuhljómsveit Íslands
Einleikarar
Baiba Skride
Harriet Krijgh
Efnisskrá
Dmítríj Shostakovitsj//Tvö verk fyrir strengjaoktett op. 11
Felix Mendelssohn//Strengjaoktett
op. 20
Á þessum tónleikum í Föstudagsröð Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Norðurljósum hljóma tvö innblásin æskuverk fyrir strengjaoktett eftir ólík tónskáld sem þó áttu það sameiginlegt að vera undrabörn á sviði tónsmíða: Mendelssohn og Shostakovitsj. Um leið gefst áheyrendum tækifæri til að kynnast fiðluleikaranum Baibu Skride og sellóleikaranum Harriet Krijgh í samhengi kammertónlistar sem þær stunda af miklu listfengi, en báðar koma fram kvöldið áður í þríleikskonsert Sofiu Gubaidulinu undir stjórn Olari Elts. Mendelssohn samdi sinn strengjaoktett á sautjánda ári sem afmælisgjöf handa fiðlukennara sínum, en verkið býr yfir fádæma hugmyndaauðgi, krafti og fágu. Shostakovitsh var sömuleiðis á tvítugsaldri þegar hann samdi Tvö verk fyrir strengjaoktett ópus 11 og bera þau sömuleiðis skapara sínum fagur vitni – líkt og í mörgum síðari verka hans má heyra hér ögrandi ómstríður og rytmíska spennu í bland við svífandi ljóðrænu.
Miðaverð er sem hér segir:
A
3.900 kr.
Dagskrá
Norðurljós
Þessi einstaki og fallegi salur á annarri hæð Hörpu hentar vel fyrir tónleika, ráðstefnur, sýningar, árshátíðir og hvers kyns mannamót.

Hápunktar í Hörpu