Tónlist, Klassík, Börn og Fjölskyldan

Ævintýrið um töfraflautuna – Sinfóníuhljómsveit Íslands
Verð
2.700 - 3.300 kr
Næsti viðburður
laugardagur 18. febrúar - 14:00
Salur
Eldborg.
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Hljómsveitarstjóri
Kornilios
Michailidis
Sögumaður
Þórunn Arna
Kristjánsdóttir
Einsöngvarar
Hrafnhildur
Árnadóttir Hafstað
Sveinn Dúa
Hjörleifsson
Jóhann Kristinsson
Harpa Ósk
Björnsdóttir
Bryndís
Guðjónsdóttir
Efnisskrá
Wolfgang Amadeus
Mozart//Töfraflautan (í styttri gerð)
Töfraflautan eftir Mozart er ein dáðasta ópera sögunnar og sannkallaður ævintýraheimur fyrir unga sem aldna. Prinsinn Tamínó leggur af stað í leiðangur til að bjarga hinni fögru Pamínu, en smám saman kemur í ljós að móðir hennar, Næturdrottningin, sem sendi hann af stað, er ekki öll þar sem hún er séð. Til aðstoðar hefur prinsinn fuglaveiðara að nafni Papagenó. Sá er lítið fyrir háfleygar hugsanir en kann vel að meta góðan mat og drykk og vill helst af öllu finna sér sálufélaga. Að lokum fella Tamínó og Pamína hugi saman, en þurfa að leysa erfiðar þrautir áður en þau fá að eigast. Hér er meistaraverk Mozarts flutt í klukkustundarlangri útfærslu fyrir sögumann og fimm einsöngvara, en með hlutverin fara íslenskir söngvarar af yngri kynslóðinni. Öll hafa þu stundað framhaldsnám erlendis og hlotið frábæra dóma fyrir söng sinn og leik. Sögumaður er Þórunn Arna Kristjánsdóttir sem lýsir framvindunni með kímnigáfu að leiðarljósi. Þetta er hugljúf og eftirminnileg ævintýrastund fyrir alla fjölskylduna og er hluti af Litla tónsprotanum.
Miðaverð er sem hér segir:
A
3.300 kr.
B
2.700 kr.
C
2.700 kr.
D
2.700 kr.
X
3.300 kr.
Dagskrá
laugardagur 18. febrúar - 14:00
Hápunktar í Hörpu