4th May 2022

Starf­s­fólk Hörpu tók þátt í Stóra Plokk­de­ginum

og plokkaði rusl í Skerjafirði

Stóri Plokkdagurinn var haldinn sunnudaginn 24. apríl sl. en hann hefur á nokkrum árum orðið einn af íslensku vorboðunum.

Þátttaka í Stóra Plokkdeginum er hluti af umhverfisstefnu Hörpu og er markmiðið að hvetja starfsfólk til enn frekari umhugsunar um allt það rusl sem finnst í náttúrunni. Starfsfólk Hörpu lét ekki sitt eftir liggja og hittist í Skerjafirðinum þriðjudaginn 26. apríl til að plokka. Að loknu góðu dagsverki í sól og blíðu var plokkurum boðið í grillveislu.

Harpa þakkar starfsfólki og öðrum plokkurum fyrir frábært framtak og hvetur áfram til allra góðra verka.

Frét­tir