Tónlist, Jazz og blús

Hróðmar Sigurðsson kvartett - Múlinn Jazzklúbbur
Verð
3.500 kr
Næsti viðburður
miðvikudagur 13. júlí - 20:00
Salur
Björtuloft
Hróðmar Sigurðsson, gítar
Tómas Jónsson, hammondorgel og hljómborð
Ingibjörg Elsa Turchi, bassi
Kristofer Rodriguez Svönuson, trommur og slagverk
Gítarleikarinn Hróðmar Sigurðsson kemur fram ásamt
kvartett sínum á þessum tónleikum. Hljómsveitin leikur tónsmíðar
Hróðmars af plötu hans sem kom út árið 2021
ásamt nýjum númerum úr hans smiðju auk örfárra ábreiða
héðan og þaðan. Hróðmar hlaut viðurkenningu á Íslensku
Tónlistarverðlaununum sem Bjartasta vonin í Jazz- og blúsflokki og
hljómsveit hans hlaut tilnefningu fyrir tónlistarflytjendur
ársins-hópar.
Miðaverð er sem hér segir:
A
3.500 kr.
Dagskrá
Björtuloft
Björtuloft eru glæsileg og óvenjuleg umgjörð fyrir veislur, móttökur, einkasamkvæmi og fundi. Salurinn er á tveimur hæðum með stórbrotnu útsýni yfir borgina. Á neðri hæð er fastur bar og útgengi á svalir með útsýni yfir höfnina.

Hápunktar í Hörpu