Tónlist, Klassík

Portrett af Stephen Hough - Einleikstónleikar
Verð
3.900 kr
Næsti viðburður
föstudagur 13. janúar - 18:00
Salur
Norðurljós
Einleikstónleikar
Stephen Hough, píanóleikari
Efnisskrá
Claude Debussy//Estampes
Stephen Hough//Partita
Franz Liszt//Petrarca-sonnetta
nr. 123
Franz Liszt//Dante-sónata sónata (úr
Années de Pèlerinage)
Á þessum föstudagstónleikum í Norðurljósum fá áheyrendur að kynnast hinni hliðinni á Stephen Hough, listamanni í samstarfi hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands, en kvöldið áður leikur hann píanókonsert nr. 3 eftir Beethoven með hljómsveitinni. Hér leikur Hough hins vegar nokkur hrífandi og virtúósísk einleiksverk úr ólíkum áttum. Tónleikunum lýkur svo á upplestri hans úr einni bóka sinna og spjalli um listina og lífið, en fáir listamenn samtímans eru viðlíka fjölhæfir og Hough sem auk píanóleiksins er bæði tónskáld, rithöfundur og listmálari.
Efnisskráin ber vitni um vítt áhugasvið einleikarans: Estampes eftir Debussy er einstaklega myndræn og litrík tónlist (en estampes merkir einmitt þykk) sem magnar upp andrúmsloft fjarlægra slóða. En verkin tvö eftir Franz liszt eru á hinn bóginn innblásin af bókmenntum, nánar tiltekið af verkum tveggja höfuðskálda Ítalíu, Dante og Petrarca. Á efnisskránni er einnig að finna eina af tónsmíðum Houghs sjálfs, Partítu, sem sækir innblástur jafnt til stórbrotinna trúarlegra verka fyrir orgel og tónlistar katalónska tónskáldsins Federico Mompou.
Miðaverð er sem hér segir:
A
3.900 kr.
Dagskrá
Norðurljós
Þessi einstaki og fallegi salur á annarri hæð Hörpu hentar vel fyrir tónleika, ráðstefnur, sýningar, árshátíðir og hvers kyns mannamót.

Hápunktar í Hörpu