Tónlist, Jazz

Simmi og félagar - Múlinn Jazzklúbbur
Verð
3.500 kr
Næsti viðburður
miðvikudagur 3. ágúst - 20:00
Salur
Björtuloft
Rögnvaldur Borgþórsson, gítar
Magnús Jóhann Ragnarsson, píanó
Sigmar Þór Matthíasson, bassi
Magnús Trygvason Eliassen, trommur
Bassaleikarinn Sigmar Þór Matthíasson kemur fram ásamt góðum
félögum sínum og spilar sín uppáhalds lög - jazz og ekki
jazz og jafnvel eitthvað frumsamið en fyrst og fremst
skemmtilegt. Svo er aldrei að vita nema Sigmar grípi í hljóðnema og
syngi nokkur lög ef það liggur vel á honum! Sigmar hefur verið virkur í
íslensku tónlistarlífi um árabil og m.a. gefið út tvær sóló plötur
- Áróra árið 2018 og nú síðast Meridian Metaphor sem kom út um miðbik
síðasta árs. Þess má geta að Sigmar hlaut samtals 4 tilnefningar til
Íslensku tónlistarverðlaunanna nýverið og hlaut ein verðlaun - sem
jazztónlistarflytjandi ársins.
Miðaverð er sem hér segir:
A
3.500 kr.
Dagskrá
Björtuloft
Björtuloft eru glæsileg og óvenjuleg umgjörð fyrir veislur, móttökur, einkasamkvæmi og fundi. Salurinn er á tveimur hæðum með stórbrotnu útsýni yfir borgina. Á neðri hæð er fastur bar og útgengi á svalir með útsýni yfir höfnina.

Hápunktar í Hörpu