Tónlist, Klassík

Tónelskir töfrar – Sinfóníuhljómsveit Íslands
Verð
2.700 - 7.700 kr
Næsti viðburður
fimmtudagur 10. nóvember - 20:00
Salur
Eldborg.
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Hljómsveitarstjóri
Nathanaël Iselin
Einleikari
Sigrún
Eðvaldsdóttir
Kynnir
Halla Oddný
Magnúsdóttir
Efnisskrá
Wolfgang Amadeus Mozart//Töfraflautan,
forleikur
John Williams//Stef
uglunnar Hedwig (úr Harry Potter)
Pablo de Sarasate//Sígaunaljóð
Paul Dukas//Lærisveinn
galdrameistarans
Ígor Stravinskíj//Eldfuglinn
(hluti)
Galdrar og töfrar eru í aðalhlutverki á þessum klukkustundarlöngu tónleikum í Grænu röðinni hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands, en þeir hefjast á forleiknum að óperu Mozarts, Töfraflautunni, áður en leiðin liggur í ævintýraheim J.K Rowling en tónlistin leikur stórt hlutverk í kvikmyndunum um Harry PotterTM.
Þá leikur Sigrún Eðvaldsdóttir, fyrsti konsertmeistari Sinfóníuhljómsveitar Íslands, hið vinsæla og töfrum slungna Sígunaljóð spænska tónskáldsins Pablos de Sarasate en meðal þekktustu stefja verksins er laglínan sem Íslendingar þekkja vel undir nafninu Til eru fræ. Lærisveinn galdrameistarans eftir Paul Dukas byggir á kvæði Johanns Wolfgangs von Goethe en margir þekkja bæði tónlistina og söguna af lærisveininum seinheppna úr Disney-teiknimyndinni Fantasíu. Tónleikunum lýkur svo á lokakaflanum úr ævintýrinu um Eldfuglinn eftir Stravinkíj.
Tónleikarnir eru um klukkustundarlangir án hlés og er einnig sjónvarpað beint á RÚV.
Miðaverð er sem hér segir:
A
6.300 kr.
B
4.900 kr.
C
3.600 kr.
D
2.700 kr.
X
7.700 kr.
Dagskrá
Hápunktar í Hörpu