jazz og blús, múlinn, tónlist
Anna Gréta og Sigurður Flosason - Múlinn jazzklúbbur
Verð
3.900 kr
Næsti viðburður
miðvikudagur 22. maí - 20:00
Salur
Björtuloft
Anna Gréta, söngur og píanó
Sigurður Flosason, saxófónn
Á lokatónleikum vordagskrár Jazzklúbbsins Múlans koma feðginin Anna Gréta Sigurðardóttir og Sigurður Flosason fram. Anna Gréta syngur og spilar á píanó og hljómborð en Sigurður spilar á saxófóna og önnur blásturshljóðfæri. Þau munu flytja frumsamda tónlist eftir bæði. Anna Gréta býr og starfar í Svíþjóð þar sem hún hefur hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir sína tónlist. Hún er um þessar mundir að senda frá sér sína aðra plötu hjá hinni virtu ACT útgáfu í Þýskalandi. Sigurður telst til eldri og reyndari jazztónlistarmanna þjóðarinnar. Hann hefur gefið út fjölbreytt úrval platna og hlotið ýmsar viðurkenningar. Þetta verða fyrstu dúótónleikar feðginanna hér á landi en þau hafa áður komið fram saman á tónleikum í Svíþjóð.
Viðburðahaldari
Múlinn Jazzklúbbur
Miðaverð er sem hér segir:
A
3.900 kr.
Dagskrá
Björtuloft
Björtuloft eru glæsileg og óvenjuleg umgjörð fyrir veislur, móttökur, einkasamkvæmi og fundi. Salurinn er á tveimur hæðum með stórbrotnu útsýni yfir borgina. Á neðri hæð er fastur bar og útgengi á svalir með útsýni yfir höfnina.
Hápunktar í Hörpu