Raftónlist, Tónlist
Verð
10.900 kr
Næsti viðburður
föstudagur 15. ágúst - 20:00
Salur
Silfurberg
Mögnuð tónleikaupplifun í myrkri – Autechre á Íslandi
Raftónlistardúettinn Autechre stígur á svið í Silfurbergi, Hörpu þann 15. ágúst næstkomandi. Um er að ræða einstaka tónleikaupplifun þar sem myrkrið ræður ríkjum.
Bresku tónlistarmennirnir Sean Booth og Rob Brown hafa undir merkjum Autechre verið leiðandi afl í framúrstefnulegri raftónlist í áratugi. Þeir eru meðal áhrifamestu en jafnframt dularfyllstu nafna í raftónlistarsenunni í dag og hafa byggt upp sérstöðu með tilraunakenndum hljóðheimum, mögnuðum taktfléttum og ófyrirsjáanlegri tónlistarsköpun. Nú eru þeir á einni umfangsmestu tónleikaferð sinni til þessa og hafa þegar komið fram víða um heim þegar þeir snerta niður á Íslandi.
Það sem gerir tónleika þeirra einstaka er að þeir fara fram í myrkvuðum sal, þar sem tónlistin fær að stjórna rýminu og skynfærin eru tekin á nýjar slóðir. Þetta verða tónleikar sem áhorfendur munu skynja frekar en sjá – hrá, óútreiknanleg og öflug upplifun sem fer lengra en hefðbundin tónlistarviðburður.
Autechre eru að fylgja eftir nýjustu útgáfu sinni, AE_2022–, sem inniheldur upptökur frá tónleikum víða um heim á árunum 2022–2024. Í desember síðastliðnum tóku þeir yfir BBC 6 Music Artist in Residence með fjögurra þátta DJ-seríu, sem endurspeglar fjölbreytileika ferils þeirra.
sideproject er raftónlistar tríó frá Reykjavík, þekkt fyrir þunga taktsmíð, ríkulega og áferðarmikla hljóðhönnun með stílbrjótandi nálgun. sideproject koma úr neðanjarðarsenu Íslands og vöktu fljótlega athygli með EP-plötunni radio vatican árið 2021, sem hlaut verðlaunin Raftónlistarplata ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum.
Árið 2024 fylgdu þeir henni eftir með breiðskífunni sourcepond, gefin út af hinu virta útgáfufyrirtæki SVBKVLT í Manchester. Auk eigin útgáfu hafa þeir unnið með listamönnum á borð við Lilu Tirando a Violeta og Sigrúnu, unnið að taktsmíðum fyrir Björk á plötunni Fossora (2022), og unnið endurhljóðblöndun af laginu hennar “Atopos.”
Með hverri útgáfu festa þeir sig í sessi sem eitt af áhugaverðustu og framsæknustu nöfnum íslenskrar raftónlistar.
Tónlistarferill John McCowen einkennist af ástríðu fyrir því að finna fjölradda tungumál á hljóðfæri sem er að uppruna til einradda – klarinettið. Hljóðheimur John McCowen er einstakur, og minnir á síbreytilegt hljóðlandslag rafræns endurvarps. Verkum hans hefur verið lýst af The New Yorker sem „hljóðrænu jafngildi örvera á smásjárgleri“ og sem „undraverðri sýningu á tæru hljóði og mannlegum vilja“ af The Wire. Hljóðrit með verkum Johns hafa verið gefin út hjá útgáfufyrirtækjunum International Anthem, Edition Wandelweiser, Sound American, Astral Spirits, Superpang og fleirum.
John hefur unnið mikið með tónskáldinu og hljóðfæraleikaranum Roscoe Mitchell. Hann hefur útsett og umritað verk Mitchells fyrir hljómsveitir og kammerhópa ásamt því að leika með honum bassasaxófón og kontrabassaklarínett dúó.
John býr í Reykjavík þar sem hann kennir spunatónlist við Listaháskóla Íslands.
Viðburðahaldari
Bad taste Reykjavík
Miðaverð er sem hér segir
A
10.900 kr.
Dagskrá
Silfurberg er annar stærsti salurinn í Hörpu og sérhannaður sem ráðstefnusalur með fyrsta flokks ljósabúnaði, hljóðkerfi og túlkaklefum. Salurinn hentar einnig vel fyrir rafmagnaða tónlist og veisluhöld.
Næstu viðburðir í Silfurbergi