ráðstefna

UAK í 10 ár - Drif­kraftur breyt­inga

Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða

Verð

6.500 - 12.500 kr

Næsti viðburður

laugardagur 11. maí - 10:00

Salur

Norðurljós

Þann 11. maí standa Ungar Athafnakonur (UAK) fyrir sinni árlegri ráðstefnu tileinkaðri ungum konum í íslensku atvinnulífi og mun hún fara fram í Norðurljósasal í Hörpu. Yfirskrift ráðstefnunnar er UAK í 10 ár – drifkraftur breytinga en 10 ár eru frá stofnun félagsins og verður því sérstakur afmælisbragur á ráðstefnunni.  

Þema ráðstefnunnar í ár mun taka mið af störfum félagsins og því verður síðasti áratugur í brennidepli ásamt stefnumótun fyrir næsta áratug, bæði á einstaklingsgrundvelli og hvernig stuðla megi að hugarfarsbreytingu í samfélaginu.

 Á þessum degi viljum við vekja athygli á mikilvægi kynjajafnréttis, veita vettvang til umræðna og fylla þátttakendur eldmóði. Við höfum því fengið til liðs við okkur framúrskarandi og skemmtilega fyrirlesara sem öll eiga það sameiginlegt að brenna fyrir málstaðinn.

Dagskráin er fjölbreytt en við munum heyra reynslusögur framúrskarandi kvenna í atvinnulífinu, læra hvernig við getum nýtt okkur fyrirbyggjandi læknisfræði, hvernig öryggi í framkomu getur skipt sköpum og hvernig við myndum okkur skýra framtíðarsýn. Allir þessir þættir spila mikilvægt hlutverk í að valdefla ungar konur á íslenskum atvinnumarkaði sem er einmitt meginmarkmið félagsins.

Vakin er athygli á því að félagskonur UAK fá miða á ráðstefnuna með afslætti, en hægt er að nýskrá sig hér

Nánar er hægt að lesa um dagskrá ráðstefnunnar hér.

Innifalið í miðaverði er gjafapoki, hádegismatur, kaffi og léttar veitingar að dagskrá lokinni. Við hlökkum til að sjá ykkur í Norðurljósasal í Hörpu þann 11. maí.

Um UAK:
UAK eru félagasamtök sem leitast við að skapa vettvang fyrir konur til að fræðast og efla hvor aðra. UAK vill gera allt sem í valdi félagsins stendur til að jafna stöðu kynja á íslenskum vinnumarkaði með því að styrkja stöðu og framtíð ungra kvenna sem stjórnendur og þátttakendur í atvinnulífinu.


Viðburðahaldari

UAK

Miðaverð er sem hér segir:

A

6.500 kr.

Norðurljós

Þessi einstaki og fallegi salur á annarri hæð Hörpu hentar vel fyrir tónleika, ráðstefnur, sýningar, árshátíðir og hvers kyns mannamót.