Ráðstefna
Price
7.000 kr
Next event
Thursday 10th April - 10:00
Venue
Norðurljós
Öldrunarþjónusta á gervigreindaröld
Ráðstefnan Öldrunarþjónusta á gervigreindaröld: Nýsköpun í öldrunarþjónustu og aukin lífsgæði aldraðra fjallar um þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir nú þegar þjóðin er að eldast og hvaða tækifæri og lausnir hægt er að vinna með, sérstaklega lausnir í tengslum við tækniþróun og forvarnir.
Ráðstefnan verður haldin fimmtudaginn 10.apríl og er á vegum Sjómannadagsráðs, Hrafnistu og DAS íbúða. Sjómannadagsráð hefur verið leiðandi afl í uppbyggingu á þjónustu fyrir aldraða á Íslandi frá stofnun, eða árið 1937.
Fjallað verður um:
- Tækniþróun í
heilbrigðiskerfinu, þá sérstaklega gervigreindina og hvernig hún mun létta
störf í umönnun.
- Heilbrigða öldrun og
gott heilsufar eldri borgara. Hvernig hægt er að hlúa betur að heilsu
þjóðar sem er að eldast með öflugum forvörnum.
- Velferðartækni í þróun
og hvernig tæknin sér til þess að fólk geti búið lengur heima hjá sér og
sé sjálfbjarga sem lengst.
- Lífsgæðakjarna og
hvernig þeir styðja við sjálfstæða búsetu eldri borgara.
Þjóðin er að eldast og því brýnt að huga að þessu mikilvæga málefni sem snertir okkur öll og horfa á tækifæri framtíðarinnar.
Nánar um Sjómannadagsráð og Hrafnistu á vefsíðunum sjomannadagsrad.is og hrafnista.is
Allar fyrirspurnir berast til:
Hafdís Huld Björnsdóttir, s. 867-8146 eða hafdis@rata.is
Promoter
Sjómannadagsráð, Hrafnista og DAS íbúðir
Ticket prices are
A
7.000 kr.
What's on
This unique and beautiful hall on the second floor of Harpa is suitable for concerts, conferences, exhibitions, annual festivals and all kinds of gatherings. Norðurljós is the perfect setting and offers a wide range of seating arrangements and layouts.
Upcoming events in Norðurljós