a large empty auditorium with red seats and a stage .

Eldborg

Hjartað í Hörpu

Stærð

1008 m2

Hámarksfjöldi

allt að 1734

Hæðir

4

Eldborg hlaut hin virtu byggingarverðlaun United States Institute of Theatre Technology (USITT) fyrir framúrskarandi hljómburð og þykir Eldborg standa vel undir nafni sem tónleikasalur á heimsmælikvarða.

Eldborgarsalurinn er sérhannaður til tónleikahalds með fyrsta flokks hljóðkerfi, mynd- og ljósabúnaði. Stórt svið og hljómsveitargryfja eru í salnum og hægt er að nýta svalir bak við sviðið og til hliðar.

Grænalón er baksviðsrými salanna á 2. hæð og þaðan er inngengi í Eldborg. Búningsherbergi eru af ýmsum stærðum, allt frá tveggja manna herbergjum upp í 10 manna herbergi og mögulega enn stærri rými fyrir stærri hópa.

Fjögur búningsherbergi fylgja leigu á Eldborg, án endurgjalds, en framboð þeirra ræðst þó af bókunarstöðu hússins og þau þarf að bóka hjá verkefnastjóra eða viðskiptastjóra eftir atvikum. Hægt er að óska eftir fleiri búningsherbergjum gegn gjaldi ef bókunarstaða hússins leyfir.

Fyrir framan salinn á annarri hæð við glerhjúpinn er hið fallega opna rými Hörpuhorn þar sem hægt er að vera með standandi móttökur eða viðburði tengdum Eldborg.

Athugið að uppgefinn sætafjöldi er miðaður við hámarksfjölda. Nýting á sætum getur breyst eftir eðli viðburðar.

Helstu upplýsingar

Stærð

1008 m2

Hæðir

4

Lofthæð

19 m

Stillanlegur ómtími

1,7-3,8 sek.

Útfærslumöguleikar

Fast svið - stærra

274 m2

Fast svið - minna

234 m2

Stærð á sviði - með stækkun

17 x 19 m

Stærð á sviði - án stækkunar

14 x 19 m

Sætafjöldi stórt svið - órafmagnaður viðburður

1442

Sætafjöldi lítið svið - órafmagnaður viðburður

1520

Sætafjöldi lítið svið og hljóð- og ljósaborð

1499

Sætafjöldi lítið svið og kórvagnar - órafmagnaður viðburður

1734

Stærð sýningartjalds

11 x 6.1 m

Myndir