Harpa hefur hlotið faggilta jafnlaunavottun, en meginmarkmið slíkrar vottunar er að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði.
Þriðja hvert ár er vottunin tekin út og var síðasta úttekt og endurnýjun vottunarinnar hjá Hörpu árið 2023. Harpa gerir árlega launagreiningu þar sem heildarlaun karla og kvenna eru borin saman að teknu tilliti til starfaflokkunar og starfsaldur er metinn í fagi og fastra eða breytilegra launa.
Meginmarkmið jafnlaunavottunar er að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði. Samkvæmt lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna skal jafnlaunavottun byggjast á Jafnlaunastaðlinum ÍST 85:2012.
Með innleiðingu staðalsins geta fyrirtæki og stofnanir komið sér upp stjórnunarkerfi sem tryggir að málsmeðferð og ákvörðun í launamálum byggist á málefnalegum sjónarmiðum og feli ekki í sér kynbundna mismunun.
Jafnlaunavottuninni er ætlað að framfylgja gildandi lögum sem leggja bann við því að konum og körlum séu greidd mismunandi laun fyrir sömu eða jafn verðmæt störf nema slíkt sé unnt að réttlæta með málefnalegum ástæðum.