Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús ohf. hefur innleitt jafnlaunastefnu sem tekur til allrar starfsemi samstæðunnar.
Það er stefna Hörpu að launaákvarðanir séu byggðar á málefnalegum forsendum og tryggt sé að sömu laun séu greidd fyrir sambærileg eða jafnverðmæt störf. Til grundvallar launaákvörðunum liggja kjarasamningar, flokkun starfa og starfslýsingar. Laun taka mið af eðli verkefna, ábyrgð, menntun og starfsreynslu sem krafist er auk frammistöðu í starfi (t.d. frumkvæði og samskiptahæfni). Ákvarðanir um launabreytingar eru teknar í samráði næsta yfirmanns, fjármálastjóra og mannauðsstjóra.
Til þess að fylgja stefnunni eftir og uppfylla lög um launajafnrétti hefur Harpa skuldbundið sig til að:
Forstjóri ber ábyrgð á jafnlaunastefnu Hörpu og að henni sé framfylgt. Mannauðsstjóri er ábyrgðaraðili jafnlaunakerfisins og ber ábyrgð á innleiðingu og viðhaldi þess í samræmi við staðalinn IST 85.