tónlistarlífi þjóðarinnar og er heimavöllur íslenskrar tónlistar.
Harpa leggur ríka áherslu á menningarlegt hlutverk sitt að efla íslenskt tónlistarlíf og stendur að og tekur þátt í vel völdum verkefnum til að uppfylla það markmið.
Harpa hefur mótað sér dagskrárstefnu sem miðar að því að auka fjölbreytni tónleikahalds, styðja við nýsköpun í tónlist og auðvelda aðgengi ungs tónlistarfólks úr grasrótinni, þvert á tónlistarstefnur, að Hörpu sem tónlistarhúsi allra landsmanna.
Tónleikaröðin Upprásin er liður í því að framfylgja dagskrárstefnu Hörpu um bætt aðgengi grasrótar og ungs fólks í öllum tónlistargreinum og auka við fjölbreytni. Markmiðið er einnig að tónlistaráhugafólk geti gengið að því vísu að heyra fjölbreytta nýja íslenska tónlist, beint úr grasrót tónlistarlífsins, flutta við kjöraðstæður í tónlistarhúsi þjóðarinnar. Upprásin fer fram einu sinni í mánuði á veturna frá september og fram í maí. Opið er fyrir umsóknir á vormánuðum.
Sígildir sunnudagar er regnhlífarhugtak yfir klassískar tónleikaraðir og staka viðburði í Norðurljósum/Kaldalóni á sunnudögum frá september og fram í miðjan maí ár hvert. Lögð er áhersla á fjölbreytt úrval tónleika með sígildri söng- og hljóðfæratónlist. Skipulag er í höndum tónlistarhópanna sjálfra en Harpa veitir röðinni stuðning með afslætti á salarleigu, kynningu og aðstoð við markaðssetningu. Öllum er frjálst að sækja um og er reynt eftir fremsta megni að koma sem flestum að.
Markmiðið með Upptaktinum er að stuðla að tónsköpun ungs fólks og hvetja börn og ungmenni til að semja eigin tónlist. Upptakturinn er fyrir krakka í 5. - 10. bekk og fer umsóknarferlið fram í byrjun hvers árs. Þeir sem komast áfram taka þátt í tónlistarsmiðju með nemendum skapandi tónlistarmiðlunar við Listaháskóla Íslands, auk þess að vinna að útsetningum undir leiðsögn nemenda Tónsmíðadeildar.