Sígildir sunnudagar er regnhlífarhugtak yfir klassískar tónleikaraðir og staka viðburði í Norðurljósum eða Kaldalóni á sunnudögum kl 16:00 frá september fram í maí árlega.
Fyrsta flokks kammertónleikar með áherslu á fjölbreytt úrval söng- og hljóðfæratónlistar.
Á Sígildum sunnudögum gefst áheyrendum kostur á fyrsta flokks kammertónleikum reglulega yfir veturinn í Hörpu. Lögð er áhersla á fjölbreytt úrval tónleika með sígildri söng- og hljóðfæratónlist.
Skipulag tónleika er í höndum tónlistarhópanna sjálfra en Harpa veitir röðinni stuðning með afslætti á salarleigu, kynningu og aðstoð við markaðssetningu með það að markmiði að stækka áheyrendahóp klassískra kammertónleika. Harpa tónlistar-og ráðstefnuhús auglýsir í febrúar/mars ár hvert eftir þátttakendum í tónleikaröðinni. Öllum er frjálst að sækja um og er reynt eftir fremsta megni að koma sem flestum að.
Hér má sjá næstu viðburði í tónleikaröðinni