Eldborg
Tónleikar
Stærð
1008 m2
Hámarksfjöldi
allt að 1734
Hæðir
4
Eldborg er stærsti salur Hörpu, staðsettur á annarri hæð og tekur allt að rúmlega 1700 manns í sæti. Salurinn er með sérhannaðan og stillanlegan hljómburð og öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð.
Eldborgarsalurinn er hannaður til tónleikahalds af öllum gerðum og í honum er með fyrsta flokks hljóðkerfi, mynd- og ljósabúnaður.
Stórt svið og hljómsveitargryfja eru í salnum og hægt er að nýta svalir bak við sviðið og til hliðar við sviðið fyrir gesti. Aðstaða listafólks og búningsherbergi eru á sömu hæð í einstaklega glæsilegu umhverfi með útsýni yfir höfnina, Esju og Akrafjall.
Grænalón heitir baksviðsrými salanna á 2. hæð og þaðan er inngengi í Eldborg. Búningsherbergi eru af ýmsum stærðum, allt frá tveggja manna herbergjum upp í 10 manna herbergi og mögulega enn stærri rými fyrir kóra og stærri hópa.
Fjögur búningsherbergi fylgja leigu á Eldborg, án endurgjalds, en framboð þeirra ræðst þó af bókunarstöðu hússins og þau þarf að bóka hjá verkefnastjóra eða viðskiptastjóra eftir atvikum. Hægt er að óska eftir fleiri búningsherbergjum gegn gjaldi ef bókunarstaða hússins leyfir.
Fyrir framan salinn á annarri hæð við glerhjúpinn er hið fallega opna rými Hörpuhorn þar sem hægt er að vera með standandi móttökur eða viðburði tengdum Eldborg.
Á austurhlið Hörpu eru þrjú hliðarrými við Eldborg; Þríund, Ferund og Fimmund, sem hæfa vel fyrir 30-60 manna standandi einkamóttökur fyrir viðburði í Eldborg.
Athugið að uppgefinn sætafjöldi er miðaður við hámarksfjölda. Nýting á sætum getur breyst eftir eðli viðburðar, sjá hér neðar.
Helstu upplýsingar
Stærð
1008 m2
Hæðir
4
Lofthæð
19 m
Stillanlegur ómtími
1,7-3,8 sek.
Svið og sýningartjald
Fast svið - stærra
274 m2
Stærð á sviði - með stækkun
17 x 19 m
Fast svið - minna
234 m2
Stærð á sviði - án stækkunar
14 x 19 m
Stærð sýningartjalds
11 x 6.1 m
Sætafjöldi
Sætafjöldi stórt svið - órafmagnaður viðburður
1442
Sætafjöldi lítið svið - órafmagnaður viðburður
1520
Sætafjöldi lítið svið og hljóð- og ljósaborð
1499
Sætafjöldi lítið svið og kórvagnar - órafmagnaður viðburður
1734
Sætafjöldi stórt svið og kórvagnar - órafmagnaður viðburður
1656
Sætaplan
Myndir
Næstu viðburðir