Fimmund
Stærð
201 m2
Sæti
Fer eftir uppröðun
Lofthæð
6 m
Fimmund er á fimmtu hæð á austurhlið Hörpu við hliðina á Eldborg með stórbrotnu útsýni yfir fjörðinn og nærliggjandi fjöll. Stórir gluggar og hátt til lofts.
Rýmið er þríhyrningslaga og því skemmtilega öðruvísi en almennt gengur og gerist með rými sem þessi. Fimmund hentar vel fyrir smærri tilefni, s.s. ráðstefnur, fundi, vinnustofur, móttökur og veislur.
Nafn rýmisins á vísan stað í tónlistarhúsi en fiimmund er svokallað tónbil. Tónbil er bilið milli tveggja nótna í tónlist eða samspil tveggja tóna.
Útfærslumöguleikar
Kennsla
60
Kabarett
50
Móttaka
70
Myndir