Norðurljós
Sjáðu viðburðinn lifna við
Stærð
540 m2
Sæti
Fer eftir uppröðun
Lofthæð
9 m
Þessi einstaki og fallegi salur á annarri hæð Hörpu hentar vel fyrir tónleika, ráðstefnur, sýningar, árshátíðir og hvers kyns mannamót. Norðurljós er hin fullkomna umgjörð og býður upp á fjölbreytta notkunarmöguleika.
Salurinn er útbúinn sérhönnuðum ljósabúnaði í veggjum sem stilla má í ýmsum litbrigðum og búa þannig til þá stemningu sem óskað er eftir. Sviðið er færanlegt sem gefur margskonar möguleika. Tvennar hljóðeinangraðar dyr tengja Norðurljós og Silfurberg þannig að mögulegt er að samnýta salina fyrir stærri viðburði.
Grænalón er baksviðsrými salanna á 2. hæð og þaðan er inngengi í Norðurljós. Búningsherbergi eru af ýmsum stærðum, allt frá tveggja manna herbergjum upp í 10 manna herbergi og mögulega enn stærri rými fyrir stærri hópa.
Tvö búningsherbergi fylgja leigu á Norðurljósum, án endurgjalds, en framboð þeirra ræðst þó af bókunarstöðu hússins og þau þarf að bóka hjá verkefnastjóra eða viðskiptastjóra eftir atvikum. Hægt er að óska eftir fleiri búningsherbergjum gegn gjaldi ef bókunarstaða hússins leyfir.
Hagnýtar upplýsingar
Svalir
Allan hringinn
Gólfflötur
540 m2 - flatur
Svið
Breytanlegt
Sæti
Laus sæti - gólf og svalir
Stillanlegur ómtími
1,2-2,9 sek.
Útfærslumöguleikar
Leikhús
456-516
Hringborð
300
Kabarett
240
Móttaka
650
Tækni
Skjávarpi
Barco F80 4k12 - 12.000 L
Sýningartjald
6 x 4,5 m
Hljóðkerfi
Meyer Sound
Ljós
Innbyggt LED í veggjum
Myndir