Silfurberg
Mótað eftir þínu höfði
Stærð
735 m2
Sæti
Fer eftir uppröðun
Lofthæð
7,7 m
Silfurberg er annar stærsti salurinn í Hörpu og sérhannaður sem ráðstefnusalur með fyrsta flokks ljósabúnaði, hljóðkerfi og túlkaklefum. Salurinn hentar einnig vel fyrir rafmagnaða tónlist og veisluhöld.
Silfurberg er á annarri hæð Hörpu. Salurinn er mest nýttur sem ráðstefnusalur en þar er fjölbreyttur mynd- og ljósabúnaður, hljóðkerfi og túlkaklefar. Salurinn hentar einnig fyrir rafmagnaða tónlist af ýmsu tagi.
Hægt er að skipta salnum í tvennt með fellivegg sem er hljóðeinangraður og rúmar þá hvor salur (Silfurberg A og Silfurberg B) um sig um 300 gesti í sæti. Tvennar hljóðeinangraðar dyr tengja Silfurberg og Norðurljós, en hægt er að samnýta salina fyrir stærri viðburði.
Sviðið getur verið í mismunandi stærðum og er færanlegt. Sætin eru laus og gólfið flatt, en koma má fyrir innbyggðum hallandi sætum við enda salarins.
Grænalón er baksviðsrými salanna á 2. hæð og þaðan er inngengi í Silfurberg. Búningsherbergi eru af ýmsum stærðum, allt frá tveggja manna herbergjum upp í 10 manna herbergi og mögulega enn stærri rými fyrir stærri hópa.
Tvö búningsherbergi fylgja leigu á Silfurbergi, án endurgjalds, en framboð þeirra ræðst þó af bókunarstöðu hússins og þau þarf að bóka hjá verkefnastjóra eða viðskiptastjóra eftir atvikum. Hægt er að óska eftir fleiri búningsherbergjum gegn gjaldi ef bókunarstaða hússins leyfir.
Hægt er að leigja svæðið Eyri fyrir utan Silfurberg í tengslum við viðburði í salnum en í Eyri er mjög góður hljómburður fyrir órafmagnaðan tónlistarflutning. Í Eyri er hátt til lofts og fallegt útsýni yfir höfnina sem gerir það að upplögðu rými fyrir standandi móttökur.
Útfærslumöguleikar heill salur
Leikhús
840
Hringborð
540
Kabarett
400
Móttaka
1100
Standandi tónleikar
1200
Sætafjöldi - stærra svið
729
Sætafjöldi - minna svið
857
Útfærslumöguleikar Silfurberg A
Leikhús
300
Kennsla
240
Hringborð
220
Kabarett
176
Móttaka
400
Útfærslumöguleikar Silfurberg B
Móttaka
400
Leikhús
325
Kennsla
252
Hringborð
240
Kabarett
192
Móttaka
400
Tækni Silfurberg A
Skjávarpi - Silfurberg A
Barco UDX 4k22 - 20.000 L
Sýningartjald
9,9 x 5,5 m
Hljóðkerfi
Meyer Sound
Ljós
Lýsing á veggjum
Tækni Silfurberg B
Skjávarpi
Barco F80 4k12 - 12.000 Lumens
Sýningartjald
6 x 3,8 m
Hljóðkerfi
Meyer Sound
Ljós
Lýsing á veggjum
Myndir