Þríund
Austurhlið
Stærð
201 m2
Sæti
Fer eftir uppröðun
Lofthæð
3,10 m
Þríund er á þriðju hæð á austurhlið Hörpu við hliðina á Eldborg með stórbrotnu útsýni yfir fjörðinn og nærliggjandi fjöll. Stórir gluggar og hátt til lofts.
Rýmið er þríhyrningslaga og því skemmtilega öðruvísi en almennt gengur og gerist með rými sem þessi. Þríund hentar vel fyrir smærri tilefni, s.s. ráðstefnur, fundi, vinnustofur, móttökur og veislur.
Nafn rýmisins á vísan stað í tónlistarhúsi en þríund er svokallað tónbil. Tónbil er bilið milli tveggja nótna í tónlist eða samspil tveggja tóna.
Útfærslumöguleikar
Móttaka
70
Kennsla
60
Kabarett
50
Myndir