1. mars 2025
Sígildir sunnudagar 2025-2026
Harpa auglýsir eftir þátttakendum í tónleikaröðina Sígildir sunnudagar

Harpa tónlistar-og ráðstefnuhús auglýsir eftir þátttakendum í tónleikaröðina Sígildir sunnudagar veturinn 2025-2026.
Sígildir sunnudagar er regnhlífarhugtak yfir klassískar tónleikaraðir og staka viðburði í Norðurljósum/Kaldalóni á sunnudögum kl 16:00 frá september 2025 og fram í miðjan maí 2026. Með röðinni gefst áheyrendum kostur á fyrsta flokks kammertónleikum vikulega í Hörpu. Lögð er áhersla á fjölbreytt úrval tónleika með sígildri söng- og hljóðfæratónlist.
Sem fyrr er skipulag tónleika í höndum tónlistarhópanna sjálfra en Harpa veitir röðinni stuðning með afslætti á salarleigu, kynningu og aðstoð við markaðssetningu á íslensku og ensku með það að markmiði að stækka áheyrendahóp klassískra kammertónleika.
Umsóknarfrestur er til og með 1. apríl 2025.