Hljóð­himnar

a room with orange walls , a bench and a mirror .

Hljóðhimnar eru upplifunarrými fyrir börn og fjölskyldur þeirra, staður til að uppgötva töfraheim hljóðs og tóna.

Hljóðhimnar eru forvitnileg, litrík og hlýleg umgjörð um undraheim hljóðs og tóna þar sem öll hönnun miðar að því að fræða í gegnum leik. Skipulag rýmisins er innblásið af eyranu og líffærafræðilegum formunum sem eru að finna í hlustinni, eins og t.d. kuðungnum.

Í Hljóðhimnum slær hjarta barnamenningar í Hörpu.

Hægt er að setja sig í stellingar hljómsveitarstjóra Sinfóníuhljómsveitar Íslands, hjúfra sig upp að vögguvísum og sönglögum Íslensku óperunnar, kíkja inn í músaholur eins og Maxímús Músíkús, sigla um tónlistarinnar höf með Tónstýri Stórsveitar Reykjavíkur og margt fleira.

Aðgangur að Hljóðhimnum er frír.

Vinsamlega athugið að á álagstímum getur reynst nauðsynlegt að koma á aðgangsstýringu í Hljóðhimnum. Þá er börnum ekki hleypt inn í rýmið nema í fylgd með fullorðnum. Hámarksfjöldi í einu er 30.

Hugmyndin og hönnunarferlið á bak við Hljóðhimna

Ein af afmælisgjöfunum á 10 ára afmæli Hörpu 2021 var hönnun á nýju rými sérstaklega hugsað fyrir börn og fjölskyldur. Sinfóníuhljómsveit Íslands, og Stórsveit Reykjavíkur, sem eiga sitt fasta aðsetur í Hörpu, og Íslenska óperan voru meðal þeirra sem lögðu sitt af mörkum til þess að skapa einstakt upplifunarferðalag um töfraheim hljóðs og tóna. Rýmið hlaut hið fallega nafn Hljóðhimnar og er staðsett á jarðhæð í Hörpu. Þverfaglega hönnunarteymið ÞYKJÓ leiddi hönnunarferlið í samstarfi við Hörpu, Gagarín, Vísindasmiðjuna, Reykjavík Audio, IRMA, fyrrnefnda íbúa hússins og síðast en ekki síst Krakkaráð ÞYKJÓ.

Krakkaráð ÞYKJÓ

Krakkaráð ÞYKJÓ er skipað 100 börnum á aldrinum 5–7 ára. Með krakkaráðinu var tryggt að börn kæmu að verkefninu og hefðu áhrif á hönnunarferlið. Um 100 börn á aldrinum 5-7 ára komu í smiðjur með hönnuðum ÞYKJÓ og vísindamönnum Vísindasmiðjunnar í Hörpu. Í smiðjunum var meðal annars leitað leiða til að miðla hljóðeðlisfræði, hvernig hljóðbylgjur hreyfa loftið og hvernig tónlist hreyfir við okkur. Hönnuðir hófu hugmyndaferlið á hugarflugi með krökkunum. Samstarfið og samtalið við börnin var grunnurinn sem hönnunarvinna ÞYKJÓ fyrir Hljóðhimna byggði á og í vinnuferlinu voru börn reglulega fengin að borðinu til að veita sitt sérfræðiálit.

Viðburðir framundan í Fjölskyldudagskrá Hörpu

Allir barna-og fjölskylduviðburðir í Hörpu