there is a piano in the middle of the auditorium .

Kaldalón

Tónleikar

Stærð

198 m2

Sætafjöldi

165 - 195

Lofthæð

8 m

Kaldalón er minnsti salurinn í Hörpu, staðsettur á fyrstu hæð, norðan megin í húsinu. Salurinn hentar vel fyrir allar tegundir tónleika, leiksýningar og listviðburði.

Breyta má litaðri lýsingu í veggjum og hljómburður er stillanlegur. Fyrsta flokks hljóð-, mynd- og ljósabúnaður.

Kaldalón hefur sína eigin baksviðsaðstöðu. Þar eru tvö rúmgóð búningsherbergi með salernum, speglum, skápum og sturtum.

Svæðið Norðurbryggja, framan við Kaldalón, er með útsýni yfir smábátahöfnina og hentar vel fyrir ýmis konar móttökur eða kynningar sem bóka má í tengslum við viðburð í Kaldalóni.

Hagnýtar upplýsingar

Svið

11 x 7 m

Sæti

Föst sæti

Gólfflötur

Hallandi

Tækni

Hljóðkerfi

Meyer Sound

Ljós

Innbyggt LED í veggjum

Skjávarpi

Barco F80 4k12 - 12.000 L

Sýningartjald

6 x 3,75 m

Myndir

Næstu viðburðir