Klassík, Sígild og samtímatónlist, Sinfóníuhljómsveit, Tónlist
Verð
2.320 - 9.800 kr
Tímabil
3. apríl - 4. apríl
Salur
Eldborg
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Bjarni Frímann Bjarnason
hljómsveitarstjóri
Ólafur Kjartan Sigurðarson
Gunnar Björn Jónsson
Kristín Anna Guðmundsdóttir
Kristín Sveinsdóttir
einsöngvarar
Kór Langholtskirkju
Magnús Ragnarsson
kórstjóri
Efnisskrá
Gioachino Rossini Forleikur að Rakaranum í Sevilla
J. Offenbach Bátssöngur úr Ævintýrum Hoffmanns
Giacomo Puccini Che gelida manina úr La Bohème
Giuseppe Verdi L'onore! Ladri! úr Falstaff
Antonín Dvorák Söngur til mánans úr Rusölku
Georges Bizet Sígaunadans úr Carmen
Georges Bizet Söngur nautabanans úr Carmen
Giuseppe Verdi Forleikur að Valdi örlaganna
Giuseppe Verdi Bella figlia d'amore úr Rigoletto
Giuseppe Verdi Fangakórinn úr Nabucco
Giacomo Puccini Intermezzo úr Manon Lescaut
Carl Zeller Schenkt man sich Rosen in Tirol úr Fuglasalinn
Wolfgang Amadeus Mozart Deh, vieni alla finestra úr Don Giovanni
Ludwig van Beethoven Mir ist so wunderbar úr Fidelio
Gioacchino Rossini Tutto cangia, il ciel s'abbella úr Vilhjálmi Tell
Ólafur Kjartan Sigurðarson,
staðarlistamaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands, hefur farið með himinskautum í heimi
óperunnar á síðustu árum og sér ekki fyrir endann á sigurgöngu hans þar. Á
undanförnum misserum hefur Ólafur komið fram í burðarhlutverkum á helstu sviðum
óperuheimsins; í La Scala óperunni í Mílanó og á Wagnerhátíðinni í Bayreuth í
Þýskalandi.
Hér býður Ólafur Kjartan til sannkallaðrar veislu — þetta er óperugala af bestu gerð þar sem glæsilegir gestir, söngvararnir Kristín Anna Guðmundsdóttir, Gunnar Björn Jónsson og Kristín Sveinsdóttir bregða sér í hin ýmsu hlutverk og syngja með Ólafi og Sinfóníuhljómsveit Íslands. Um tónsprotann heldur Bjarni Frímann Bjarnason.
Þessir tónleikar eru fullir af ástríðu, örlagaþrungnum aríum og dýrðlegum dúettum úr helstu perlum óperunnar, t.d. eftir Verdi, Puccini, Giordano og Bizet — ómissandi fyrir þá sem unna fögrum söng og óperutónlist.
Viðburðahaldari
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Miðaverð er sem hér segir
A
8.400 kr.
B
6.500 kr.
C
4.800 kr.
D
2.900 kr.
X
9.800 kr.
A
6.720 kr.
B
5.200 kr.
C
3.840 kr.
D
2.320 kr.
X
7.840 kr.
Dagskrá
fimmtudagur 3. apríl - 19:30
Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn er sérhannaður til tónleikahalds, en hentar einnig vel fyrir ráðstefnur og fyrirlestra.
Næstu viðburðir í Eldborg