Tónlist

Event poster

Músíktilraunir 2025

Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða

Verð

2.200 kr

Tímabil

29. mars - 6. apríl

Salur

Norðurljós

Músíktilraunir er tónlistarhátíð sem stendur yfir í 5 daga. Hátíðin á sér yfir 40 ára sögu en fyrstu tilraunirnar fóru fram árið 1982. Ungmenni á aldrinum 13-25 ára geta sótt um þátttöku með því að senda inn umsókn á heimasíðu tilraunanna og greiða þátttökugjald. Undankvöldin eru fjögur þar sem u.þ.b. 40 hljómsveitir keppa að því takmarki að komast áfram á úrslitakvöldið. 

Um 10-12 hljómsveitir komast í úrslit og hljóta efstu þrjár sveitirnar glæsileg verðlaun. Efnilegustu hljóðfæraleikararnir eru einnig valdir af dómnefnd en áhorfendur velja vinsælustu hljómsveitina með símakosningu. Undanfarin ár hefur úrslitakvöldinu verið útvarpað um land allt af Rás 2 og árið 2016 hóf Ríkissjónvarpið að streyma úrslitakvöldinu í beinni útsendingu á www.ruv.is

Músíktilraunirnar veita frábært tækifæri til þess að fylgjast með grasrótinni í íslensku tónlistarlífi og hafa hljómsveitir á borð við Of Monsters and Men, Samaris, Vök, Mínus og Mammút borið sigur úr bítum. Undankvöldin verða 27. mars - 30. mars 2025 kl.19:30 og er miðaverð á hvert undankvöld 2.200 kr. 

27. mars
Ann Lemon
Bíóborg
Bjarki Berg
Daníela Ehman
Dóra & Döðlurnar
j.bear & the cubs
Murder for Profit
Nógu Gott
Spírutual Reflections
Wendigo

28. MARS
5K
Ari Smárason
Big Band Eyþórs
Borgir
Hafaldan
HVFFI
Impazzive
Lucasjoshua
Splitting Tongues
Undur
Þögn

29. MARS
Aoife O´Brien
BrekiBach
Fjöður
Geðbrigði
Gravity is optional
Guðbrandur Örn
Nuclear Nathan
Rown
Scatterbrayn
Sót
Spældu Egginn

30. MARS
Asbezt
Elín Óseyri
Flórurnar
Gréta Ólafs
King Standard
Kyrsa
Richter
SLYSH
Spacement
Úti í Hött

Úrslitakvöldið er haldið 6.apríl kl.17:00 og er miðaverð 2.700 kr.

Nánari upplýsingar er að finna á:

www.musiktilraunir.is

www.facebook.com/musiktilraunir

Icelandair er aðalbakhjarl Músíktilrauna.

Músíktilraunir eru styrktar af ÝLI tónlistarsjóði fyrir ungt fólk www.ylir.is.


Viðburðahaldari

Músíktilraunir

Miðaverð er sem hér segir

A

2.200 kr.

Dagskrá

Norðurljós

Þessi einstaki og fallegi salur á annarri hæð Hörpu hentar vel fyrir tónleika, ráðstefnur, sýningar, árshátíðir og hvers kyns mannamót. Norðurljós er hin fullkomna umgjörð og býður upp á fjölbreytta notkunarmöguleika.

a large auditorium filled with rows of chairs and purple lights .

Næstu viðburðir í Norðurljósum