Sýning
Verð
4.900 kr
Næsti viðburður
miðvikudagur 2. apríl - 16:00
Salur
Flói
Stærsta kokteilasýning Íslands, Reykjavík Cocktail Week Expo verður haldin í Hörpu miðvikudaginn 2. apríl!
Barþjónaklúbbur Íslands stendur fyrir þessari árlegu hátíð í samstarfi við alla helstu vínbirgja landsins. Ásamt allskonar vörukynningum í fljótandi formi fer fram Íslandsmeistaramót Barþjóna þar sem leitin af besta barþjóni landsins hefst. Einnig fá allir gestir að kjósa um kokteilabar ársins! Húsið opnar klukkan 16:00 og er opið öllum þeim sem hafa áhuga á vínmenningu og kokteilum. Þetta er kvöld sem þú vilt ekki missa af!
Á meðan Reykjavík Cocktail Week stendur verða sérstakir Reykjavík Cocktail Week kokteilaseðlar í boði á flestum veitingahúsum og börum Reykjavíkur. Staðirnir munu bjóða upp á fjölda viðburða tengda hátíðinni sem eru öllum opnir.
Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á bar.is
Viðburðahaldari
Barþjónaklúbbur Íslands
Miðaverð er sem hér segir
A
4.900 kr.
Dagskrá
Flói er glæsilegt opið rými á fyrstu hæð sem hentar vel fyrir móttökur, veisluhöld, markaði eða sem sýningarsvæði. Fallegt útsýni er úr Flóa yfir Esjuna, höfnina og miðborgina.
Næstu viðburðir í Flóa