Börn og Fjölskyldan, Fjölskyldan, Fjölskyldudagskrá Hörpu

Event poster

Reykjavík Early Music Festival & Fjöl­skyldu­dag­skrá Hörpu: Krakka­barokk

Verð

0 kr

Næsti viðburður

fimmtudagur 17. apríl - 11:00

Salur

Harpa

Reykjavík Early Music Festival í samstarfi við Fjölskyldudagskrá Hörpu kynnir:

Krílabarokk

  • Hvar? Þríund, salur á 3. hæð Hörpu
  • Hvenær? 17. apríl kl. 11 & kl. 12
  • Lengd? 30 mínútur
  • Fyrir hverja? Börn 4-12 ára & fjölskyldur
  • Gestir geta notið tónleikanna óháð móðurmáli.
  • Aðgangur ókeypis! Skráning opnar 10. apríl kl. 10 á harpa.is

Uppgötvaðu kemmtilegu hliðar Barokktónlistarinnar! Fjölskyldur eru boðnar velkomnar á þátttökutónleika með Nataliu Duarte Jeremias og Önnu Tóth sem leika á barokk strengjahljóðfæri. Komdu og uppgötvaðu hljóm girnistrengja og hreyfðu þig við taktinn í barokkdönsum eftir Purcell, Bach, Geminiani og fleiri.

Nánari upplýsingar um heimsóknir í Hörpu og aðgengismál má finna á heimasíðu Hörpu.

Við viljum upplýsa gesti um að ljósmyndari/upptökumaður á vegum Hörpu gæti verið viðstaddur viðburðinn. Ef foreldrar eða forráðamenn vilja ekki að myndir/myndbönd af börnum þeirra birtist í umfjöllun um viðburðinn á miðlum Hörpu þá biðjum við ykkur vinsamlegast um að láta starfsfólk eða ljósmyndarann vita á staðnum eða í gegnum netfangið markadsdeild@harpa.is




Viðburðahaldari

Harpa

Miðaverð er sem hér segir

A

0 kr.

Dagskrá

fimmtudagur 17. apríl - 11:00

Næstu viðburðir í Harpa