7. september 2022

Nýr verk­efna­stjóri barna­menn­ingar í Hörpu

Ingibjörg Fríða Helgadóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri barnamenningar í Hörpu og mun stýra barna- og fjölskyldudagskrá Hljóðhimna

Ingibjörg Fríða Helgadóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri barnamenningar í Hörpu og mun stýra barna- og fjölskyldudagskrá Hljóðhimna, nýs upplifunarrýmis fyrir börn í Hörpu. Ráðningin er í samræmi við auknar áherslur Hörpu á barna- og fjölskyldumenningu. 

Ingibjörg Fríða er söngkona með fjölbreyttan bakgrunn í tónlist. Hún lauk burtfararprófi bæði í klassískum söng og rytmískum söng ásamt BA prófi í skapandi tónlistarmiðlun frá Listaháskóla Íslands.

Ingibjörg Fríða hefur mikla reynslu af því að starfa með börnum og hefur undanfarin ár komið fram á fjölskylduskemmtunum, sungið inn á teiknimyndir, kennt börnum og ungmennum tónlist í vinnusmiðjum og einkatímum, stýrt barnadagskrá í Hörpu auk þess að starfa um skeið hjá KrakkaRÚV með menningarumfjöllun fyrir börn í útvarpi og sjónvarpi. Hún hefur unnið að ýmsum verkefnum í Hörpu frá árinu 2014, m.a. leitt leiðsagnir um húsið, skoðunarferðir fyrir börn þar sem krókar og kimar Hörpu eru kannaðir og tekið á móti leikskólabörnum í jólasöngstundir.

Á tíu ára afmælisári Hörpu, árið 2021, stýrðu IngibjörgFríða og Sigurður Ingi Einarsson vinnu 10 ára tónskálda sem sömdu nýtt afmælislag fyrir Hörpu, Alveg eins og ég og tóku upp tónlistarmyndband í tilefni afmælisins. Afmælislagið hlaut Lúðurinn á íslensku auglýsingaverðlaununum í apríl síðastliðnumí flokknum Viðburðir.

Vetrardagskrá Hljóðhimna – nýs upplifunarrýmis fyrir börn í Hörpu

Í upplifunarrýminu Hljóðhimnum slær hjarta barnamenningar í Hörpu en þar geta börn og fjölskyldur þeirra upplifað töfraheima hljóðs og tóna. 

Hljóðhimnar eru daglega opnir öllum börnum og fullorðnum í þeirra fylgd. Barna- og fjölskyldudagskrá í Hörpu verður með glæsilegra móti á komandi vetri og standa Sinfóníuhljómsveit Íslands og Íslenska óperan einnig að dagskrárgerð með tónleikum.

“Við finnum fyrir mikilli ánægju með Hljóðhimna meðal gesta en sú aukna áhersla sem við leggjum nú á barna- og fjölskyldumenningu er liður í stefnumótun Hörpu um hvernig húsið sinnir sem best menningarlegu og samfélagslegu hlutverki sínu”, segir Svanhildur Konráðsdóttir forstjóri Hörpu.

Fréttir