9. september 2024

Götulokun vegna malbikunarvinnu í dag

Breytt aðkoma að Hörpu í dag vegna framkvæmda.

Lokun-090924

Mánudaginn 9. September verða malbikunarframkvæmdir á vegum Reykjavíkurborgar við Hörpu. Af þeim sökum verður innkeyrslan í bílakjallarann okkar lokuð, þ.e. vegurinn frá gatnamótum Sæbrautar og Faxagötu að rampinum að bílakjallara Hörpu.

Athugið að bílakjallari Hörpu verður þó opinn og hægt að keyra inn og út úr honum í gegnum innkeyrslur við Hafnartorg og Edition.

Hér að neðan má sjá skýringarmynd af því svæði sem verður lokað.

Fréttir