27. ágúst 2024
Takk fyrir frábæra Menningarnótt í Hörpu!
Harpa þakkar gestum fyrir komuna í Hörpu á Menningarnótt og einnig öllu því stórkostlega listafólki sem kom fram, saman gerðuð þið daginn ógleymanlegan.

Á Menningarnótt voru haldnir um 50 viðburðir í Hörpu og úti á Hörputorgi.
Fjöldi gesta í húsi var hátt í 16.000, sem er metfjöldi, auk þeirra gesta sem nutu dagskrárinnar á Hörputorgi. Þá er einnig gaman að segja frá því að 300 manns komu fram þennan dag. Þar á meðal lúðrasveitir, Sinfóníuhljómsveit Íslands, trúðar, tröll og stærðarinnar flamingóar, fljúgandi hjólaknapar, fjölmargt tónlistarfólk og svo mætti lengi telja.
Ragnhildur Gísladóttir og Halldór Gunnar slógu lokahljóminn í dagskrá Hörpu þegar þau stýrðu samsöng af öllum hæðum. Á meðal þeirra sem sungu með var Frú forseti, Halla Tómasdóttir og forsetagæinn Björn Skúlason.
Haustdagskráin í Hörpu er hafin og fjölbreyttir viðburðir í boði í vetur.
Þú finnur dagskrána hér á
!Sjáumst í Hörpu!