Persónuverndarstefna
Harpa tekur á móti miklum fjölda gesta á ári hverju og er félaginu umhugað um meðferð persónuupplýsinga gesta sinna og hefur í því sambandi sett sér eftirfarandi persónuverndarstefnu.
Hlutverk Hörpu er að vera vettvangur fyrir tónlistar- og menningarlíf sem og hvers konar ráðstefnur, fundi og samkomur, innlendar og erlendar.
Hlutverk hússins er jafnframt að vera miðstöð mannlífs fyrir alla landsmenn í miðborg Reykjavíkur og áfangastaður ferðamanna, innlendra og erlendra, sem vilja kynna sér bygginguna, þjónustu hennar, arkitektúr og listaverk í húsinu.
Þetta hlutverk rækir Harpa einkum með því að leigja út sali og rými til tónlistarviðburða, ráðstefnuhalds, funda og tengdrar starfsemi á samkeppnishæfu verði með því að standa fyrir samstarfsverkefnum og eigin verkefnum eftir því sem rekstur félagsins leyfir.
Harpa tekur á móti miklum fjölda gesta á ári hverju og er félaginu umhugað um meðferð persónuupplýsinga gesta sinna og hefur í því sambandi sett sér eftirfarandi persónuverndarstefnu.
Harpa er í eigu ríkisins (54%) og Reykjavíkurborgar (46%) og er opinbert hlutafélag.
Stefna þessi tekur til allra þeirra persónuupplýsinga sem Harpa safnar hvort sem þeim er safnað og þær varðveittar með rafrænum hætti eða öðrum hætti svo sem á pappír.
Stefnan er ávallt aðgengileg á vef Hörpu en jafnframt er hægt að skoða stefnuna þegar farið er í gegnum miðasöluferlið. Allt kapp hefur verið lagt á að útskýra vinnslu persónuupplýsinga á einfaldan og hnitmiðaðan hátt.
Stefna þessi tekur mið af lögum nr. 90./2018 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga og var samþykkt á stjórnarfundi 4. mars 2020. Stefnan var síðast yfirfarin og uppfærð 8. febrúar 2022.
Tekið er við ábendingum og fyrirspurnum á netfanginu personuvernd@harpa.is.