

Tónsköpunarverðlaun fyrir börn og ungmenni
Upptakturinn er tónsköpunarverkefni, ætlað börnum og ungmennum í 5. – 10. bekk.
Börn og ungmenni sem hafa áhuga á að skapa tónlist geta sótt um að vera með. Það gera þau með því að senda inn hugmynd að lagi eða tónsmíð í því formi og í þeim stíl sem þau kjósa.
Valnefnd tekur við innsendum hugmyndum og velur úr 13 tónsmíðar eða lagahugmyndir. Þau eru svo þróuð áfram af tónsmíðanemendum við Listaháskóla Íslands ásamt lagahöfundunum ungu.
Að loknu því ferli eru nýju tónsmíðarnar fluttar af starfandi tónlistarfólki á tónleikum í Hörpu. RÚV tekur tónleikana upp og sendir þá út ásamt viðtölum við ungu tónskáldin.
Upptakturinn var fyrst sleginn árið 2012 og hefur þróast, vaxið og dafnað æ síðan en um 150 börn og ungmenni hafa hlotið Tónsköpunarverðlaun Upptaktsins.
Árið 2022 hlaut Upptakturinn hin alþjóðlegu YAM - verðlaun (Young Audience Music Awards) sem besta þátttökuverkefnið fyrir ungmenni.
Innsendingarfrestur fyrir næsta Upptakt er til og með sunnudagsins 22. febrúar 2026.
Markmið Upptaktsins
Sköpun
Börn og ungmenni eru hvött til að skapa eigin tónlist.
Úrvinnsla
Börn og ungmenni fá stuðning við að fullvinna hugmyndir sínar.
Flutningur
Börn og ungmenni fá að upplifa eigin tónlist í flutningi fagfólks við kjöraðstæður á tónleikum í Hörpu.
Skráning
Tónlistin er hljóðrituð og henni er miðlað áfram.
Reglur
Umsókn skulu fylgja eftirfarandi upplýsingar:
Að skilafresti liðnum
Starfandi tónlistarfólk úr ólíkum áttum situr í valnefnd og velur 13 verk úr innsendum hugmyndum.
Verkin sem komast áfram verða fullunnin í tónsmiðju með tónsmíðanemum í Listaháskóla Íslands og fagfólki í tónlist. Tónsmiðjur fara fram í LHÍ og Hörpu í mars 2026.
Öll tónverkin verða flutt á tónleikum í Norðurljósum í Hörpu 22. apríl 2026. Tónleikarnir eru liður í Barnamenningarhátíð í Reykjavík.
Öll verkin sem flutt eru á tónleikunum hljóta tónsköpunarverðlaunin Upptakturinn 2026.
RÚV er samstarfsaðili Upptaktsins, tekur upp tónleikana og framleiðir viðtöl við ungu tónskáldin.
Upptakturinn er verkefni á vegum Hörpu í samstarfi við Listaháskóla Íslands, RÚV og Tónlistarborgina Reykjavík. Í samstarfi eru einnig Borgarbyggð, Fjarðarbyggð, Garðabær, Kópavogsbær, Menningarfélag Akureyrar, Mosfellsbær. Samtök sunnlenskra sveitafélaga og Vestfirðir.
Kynningarmyndband











