17. ágúst 2021
Ábyrgt viðburðarhald
Harpa leggur áherslu á ábyrgt viðburðarhald og fylgir í einu og öllu núgildandi reglum og viðmiðum um samkomutakmarkanir. Útfærslur á viðburðahaldi eru ávallt unnar í nánu samstarfi við almannavarnir með fagmennsku og áreiðanleika að leiðarljósi.
Grundvöllur ábyrgs viðburðahalds í Hörpu byggir á eftirfarandi:
- Framhús og almenningsrými í Hörpu eru stór og rúmgóð. Þau eru opin og aðgengileg viðburðagestum án takmarkana en gestum er bent á að virða nálægðartakmarkanir.
- Sótthreinsun svæða í almenningsrýmum og sölum er meiri en alla jafna þar sem aukin áhersla er lögð á snertifleti eins og lyftur, hurðarhúna, og handrið.
- Spritt er aðgengilegt í miðasölu og í almannarými þar sem streymi gesta er hvað mest.
- Sölum er skipt upp í sóttvarnarsvæði þar sem hámarskfjölda samkomutakmarkanna er fylgt.
- Inngangar í sóttvarnarsvæði sala eru aðskildir.
- Salerni eru skilgreind og aðskilin fyrir hvert sóttvarnarsvæði.
- Sótthreinsun á helstu snertiflötum í sölum er framkvæmd milli viðburða.
- Gestir eru markvisst hvattir til að sýna ábyrgð og sinna einstaklingsbundnum smitvörnum.
- Starfsmenn Hörpu bera andlitsgrímur og við biðjum gesti um að gera slíkt hið sama.
Fréttir
4. desember 2024
Opnunartími í Hörpu yfir hátíðirnar
Kynntu þér opnunartímana og dagskrána í Hörpu yfir hátíðirnar
6. nóvember 2024
Verðlaunahafar Norðurlandaráðs heimsóttu Hörpu
Svanhildur Konráðsdóttir tók á móti hópi verðlaunahafa Norðurlandaráðs á dögunum.
22. október 2024
Styrkir til tónleikahalds í Hörpu
Umsóknir til tónleikhalds árið 2025