Hörpustrengir
Rekstrarfélagið Hörpustrengir ehf. var stofnað í desember 2013. Félagið hefur þann tilgang að standa fyrir völdum viðburðum sem marka spor í íslenskt tónlistar- og menningarlíf og myndu ekki verða að veruleika án aðkomu félagsins.
Viðburðir eru oftast unnir með völdum samstarfsaðilum. Félagið gætir þess að standa ekki í beinni samkeppni við viðburðahaldara og fasta notendur hússins.
Hörpustrengir hafa staðið fyrir fjölda ólíkra viðburða, sem dæmi má nefna:
- Stórtónleikar fiðluleikarans Anne-Sophie Mutter og Mutter Virtuosi
- Hnotubrjótinn í uppfærslu Kiyv Grand Ballet í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands
- Hnotubrjótinn í uppfærslu St. Petersburg Ballet í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands
- London Philharmonic Orchestra
- Reykjavik Midsummer Music
- Heimspíanistann Philip Glass
- Jazzleikarann Wynton Marsalis í samstarfi við Jazzhátíð
- San Francisco ballettinn: Hátindar á ferli Helga
- Upptaktinn, tónsköpunarverðlaun barna og ungmenna
- Svanavatnið í uppfærslu St. Petersburg Ballet í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands
- Academy of St Martin in the Fields og Joshua Bell
- Budapest Festival Orchestra
- Þyrnirós í uppfærslu St. Petersburg Ballet í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands