Himinglæva

a large metal sculpture is sitting in front of a building .

Listaverkið Himinglæva eftir Elínu Hansdóttur stendur á Hörputorgi og var formlega vígt þann 7. maí 2022.

Form verksins er margslungið og er sótt til kenninga um myndgerða hljóðbylgju. Verkið er eins konar hljóðfæri og má segja að vindurinn „spili“ á skúlptúrinn og hafi þannig vísan til tónlistar og hæfir því vel fyrir utan Hörpu. Titillinn Himinglæva er sóttur í Norræna goðafræði en Himinglæva er ein af níu dætrum sjávarguðsins Ægis og konu hans Ránar.

Val á listaverki á Hörputorg á sér langan aðdraganda og er hluti af endurvakinni vinnu sem fram fór í hönnunarferli svæðisins umhverfis Hörpu áður en eiginleg bygging hússins hófs. Samkvæmt tillögu frá Listasafni Reykjavíkur varð listaverkið Himinglæva eftir Elínu Hansdóttur fyrir valinu og er verkið gjöf ríkis og borgar til Hörpu Í tilefni af 10 ára afmæli hússins árið 2021. Verkinu var valinn staður á Hörputorgi við enda Reykjastrætis þar sem það blasir við þegar komið er að Hörpu en einnig þegar farið er eftir Sæbraut.

Um listakonuna

Elín Hansdóttir er einn af fremstu myndlistarmönnum þjóðarinnar. Hún lærði við Listaháskóla Íslands, 1999-2003 og KHB-Weissensee í Berlín þar sem hún lauk MA gráðu árið 2006. Hún hefur sýnt víða bæði hérlendis og erlendis og meðal einkasýninga hennar eru Annarsstaðar í Ásmundarsal (2020), Simulacra í i8 Gallery (2016) og Uppbrot í Ásmundarsafni (2016 ásamt Ásmundi Sveinssyni). Meðal samsýninga mánefna Iðavöllur í Listasafni Reykjavíkur Hafnarhúsi (2021),Glass and Concrete í Marta Herford (2020) og Latent Shadow íHarbinger (2020). Árið 2007 var Elín valin til þátttöku í Frieze Projects í London. Hún hlaut Bjartsýnisverðlaunin árið 2017 og styrk úr Listasjóði Guðmundu S. Kristinsdóttur síðar sama ár.