Hörpu­strengir

Hörpu­strengir

Rekstrarfélagið Hörpustrengir ehf. hefur þann tilgang að standa fyrir völdum viðburðum í Hörpu sem marka spor í íslenskt tónlistar- og menningarlíf og myndu ekki verða að veruleika án aðkomu félagsins.

Viðburðir á vegum Hörpustrengja eru unnir með völdum samstarfsaðilum víðs vegar að úr heiminum. Félagið gætir þess að standa ekki í beinni samkeppni við viðburðahaldara og fasta notendur hússins.

Hörpustrengir hafa staðið fyrir fjölda ólíkra viðburða, sem dæmi má nefna:

  • Fjöllistahópinn Cirque Kalabanté með sýninguna Africa in Circus
  • Tónleikar Bamberg sinfóníunnar ásamt Hélène Grimaud undir stjórn Jakub Hrůša.
  • Klassíski krakkadagurinn í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands og Bamberg sinfóníuna.
  • Stórtónleikar fiðluleikarans Anne-Sophie Mutter og Mutter Virtuosi
  • Hnotubrjótinn í uppfærslu Kiyv Grand Ballet í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands
  • Hnotubrjótinn í uppfærslu St. Petersburg Ballet í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands
  • London Philharmonic Orchestra
  • Reykjavik Midsummer Music
  • Heimspíanistann Philip Glass
  • Jazzleikarann Wynton Marsalis í samstarfi við Jazzhátíð
  • San Francisco ballettinn: Hátindar á ferli Helga
  • Upptaktinn, tónsköpunarverðlaun barna og ungmenna
  • Svanavatnið í uppfærslu St. Petersburg Ballet í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands
  • Academy of St Martin in the Fields og Joshua Bell
  • Budapest Festival Orchestra
  • Þyrnirós í uppfærslu St. Petersburg Ballet í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands