Björtu­loft

Björtuloft eru glæsileg og óvenjuleg umgjörð fyrir veislur, móttökur, einkasamkvæmi og fundi. Salurinn er á tveimur hæðum með stórbrotnu útsýni yfir borgina. Á neðri hæð er fastur bar og útgengi á svalir með útsýni yfir höfnina.

Um er að ræða 400 m² rými á tveimur hæðum. Á neðri hæð er fastur bar og útgengi á stórkostlegar svalir með útsýni yfir höfnina og borgina. Salurinn rúmar um 100 manns á hringborðum á efri hæð og um 20 manns á neðri hæð.

Ef um standandi móttöku er að ræða komast um 200 manns fyrir á báðum hæðum. Björtuloft er búið sýningartjaldi og skjávarpa á 7. hæð og er eini lokaði salurinn í Hörpu með svölum sem hægt er að ganga út á.

Tækniupplýsingar

Útisvalir 289m²
6. hæð: Salur 190m² - 40 sæti (veisluuppröðun)
7. hæð: Salur 217m² - 100 sæti (veisluuppröðun)
Salir samtals: 407m²
Standandi 200 manns (móttökuuppröðun)

Skoðaðu salinn

Bóka ráðstefnu, fund eða tónleika í Hörpu

Ráðstefnudeild

Tónlistardeild

Myndasafn