Our people

Harpa leggur áherslu á að vera eftirsóttur vinnustaður og fyrsti valkostur þeirra sem vilja starfa í faglegu, skapandi og menningartengdu umhverfi. Lögð er áhersla á uppbyggilega og jákvæða vinnustaðamenningu og að allt starfsfólk hafi rödd.

Stefna Hörpu er að virða mannréttindi og jafnrétti í allri starfsemi sinni og er megináhersla lögð á að skapa vinnuumhverfi þar sem starfsfólk er með jafna stöðu og fær jöfn tækifæri til starfsframa og launa.

Kynjahlutfall

Kynja­hlut­fall

Fjöldi einst. starf­andi 2023

Starfs­aldur

Meðal­aldur

Fast­ráðnar kvk

21

5,5

50

Fast­ráðnir kk

30

4,7

43

Tíma­vinnu­fólk kvk

38

2,4

25

Tíma­vinnu­fólk kk

11

1,6

22

Önnur kyn - ekki skráð

0

0

0

Fjöldi einstaklinga starfandi á árinu

Fastráðnar konur

21

Fastráðnir karlar

30

Tímavinnufólk konur

38

Tímavinnufólk karlar

11

Vinnustaðagreiningar 

Harpa gerir reglulega vinnustaðagreiningar þar sem starfsfólk er beðið um að lýsa skoðun sinni á málefnum er snúa að vinnustaðnum og líðan þeirra þar. Eins tekur Harpa þátt í könnun VR um Fyrirtæki ársins og fær þar samanburð við aðra vinnustaði á viðhorfi starfsfólks. Lögð er áhersla á andlegt og líkamlegt öryggi starfsfólks og er áhættumat framkvæmt því til stuðnings og brugðist við þar sem þurfa þykir.

Vinnustaðagreiningar september 2023

Starfsánægja

0

Skýr framtíðarsýn (ég get séð mig í starfi hjá Hörpu eftir 1 ár)

0

Ég er hvött/hvattur til að leita mér nýrra leiða til að vinna starf mitt betur

0

Heildareinkunn í Fyrirtæki ársins 2023

0

Starfsandi í Fyrirtæki ársins 2023

0

Öruggur vinnustaður

Ánægjulegt er að greina frá því að engin slys eða næstum slys voru skráð á starfsfólk á árinu. Harpa er með virkt athugasemdakerfi þar sem haldið er utan tilkynningar sem varða öryggismál. Kerfið er opið starfsfólki Hörpu sem og íbúum þess og geta öll sett inn ábendingar og skráð atvik ef þau verða.

Í samskiptasáttmála starfsfólks Hörpu eru virðing, fagmennska og jafnræði í forgrunni og er áhersla lögð á að öll samskipti og hegðun á vinnustaðnum endurspegli þau gildi. Harpa leggur áherslu á gagnkvæma virðingu í samskiptum og greiða leið að stuðningi í tengslum við samskiptavanda ef hann kemur upp.  

Samgöngusamningur

Eldsneytisnotkun farartækja myndar hluta af kolefnisspori Hörpu. Það er því lögð mikill áhersla á að hvetja starfsfólk til að nýta sér umhverfisvæna kosti til og frá vinnu. Með umhverfisvænum kostum er átt við allan ferðamáta annan en að ferðast til og frá vinnu á einkabíl, svo sem að ganga, hjóla eða ferðast með strætisvögnum. 

Harpa hóf að bjóða starfsfólki samgöngusamning árið 2021 en árið 2023 var boðið upp á tvær gerðir af samgöngustyrkjum, allt árið eða frá maí til september. Þar sem vinnutími flests starfsfólks er ekki hinn hefðbundni frá kl. 8:00 til 16:00 þá hefur starfsfólk ekki treyst sér í að taka upp samgöngustyrkinn. Gerð var könnun meðal starfsfólks um ferðavenjur og var ein spurningin „Hvaða hvati þarf að vera til þess að þú veljir samgöngusamning?“ og kom þar í ljós að almennar samgöngur þurfa að vera tíðari til að það mundi borga sig. Kannanir sýna að heildarlosun af samgöngum starfsfólks var 25,6 tCO₂í en 2023 17,3 tCO₂í. Má rekja það til þess að fleira starfsfólk hafði fest kaup á rafmagnsbíl á árinu. Notkun á almenningsamgöngum stóð í stað milli ára, eða 1,1 tCO₂í á ári.

Ferðavenjur starfsfólks ti og frá vinnu

Gangandi

0

Hjólandi

0

Strætó

0

Rafmagnsbíll

0

Tvinnbíll

0

Díselbíll

0

Bensínbíll

0

Heilsuvernd

Hlutfall starfsfólks sem nýtir sér íþróttastyrk

71%

Hlutfall starfsfólks sem nýtir sér samgöngustyrk

9%

Hlutfall starfsfólks sem fór í heilusmælingu

65%

Fræðsla og þjálfun

Harpa innleiddi fræðslukerfi á árinu og með því er lögð aukin áhersla á fræðslu sem snýr að andlegri og líkamlegri heilsu ekki síður en starfstengdri fræðslu. Harpa styður vel við þróun starfsfólks síns með því að bjóða upp á námskeið á vinnustaðnum og með því að hvetja starfsfólk til að taka frumkvæði að starfsþróun sinni. Harpa veitir tækifæri til starfsþróunar innan vinnustaðarins.

Fjölskylduvænn vinnustaður

Markmiðið með fjarvinnustefnu Hörpu er að stuðla að fjölskylduvænum og sveigjanlegum vinnustað og jákvæðu framlagi til umhverfisins með því að minnka kolefnisspor og draga úr umferð. Stefnan nær til allra fastráðinna starfsmanna Hörpu sem eru í verkefnum sem henta til fjarvinnu og skila ábata fyrir báða aðila.