6. júlí 2023, 00:00
Ferðalag um Ísland
í sýndarveruleika í Hörpu.

Saga VR hefur opnað á jarðhæð Hörpu og þar geta gestir farið í spennandi ferðalag um Ísland í þartilgerðum stól með sýndaveruleikagleraugum.
Alls eru fjögur myndbönd í boði sem sýna mismunandi ferðalög um landið; Suðurland, Norðausturland, Snæfellsnes og eldgos í Merardölum. Myndböndin eru tekin úr lofti með dróna og 360° myndavél. Upplifunin tekur um 13 mínútur.
Opið er alla daga vikunnar frá kl. 10-18.
Verð fyrir fullorðna er 4.300 kr. og 16 ára og yngri greiða 3.100 kr.