Hringátta

Gagnvirk sýning fyrir alla fjölskylduna sem sækir innblástur í hraunið og bergið, vatnið, gróðurinn, þörunga og örverur - andardrátt eldfjallanna og túlkar þannig heillandi hringrás lífsins undir töfrandi tónum Högna Egilssonar.

Einstök upplifun fyrir alla fjölskylduna sem fangar kraftana í náttúru Íslands með skemmtilegri gagnvirkni undir heillandi tónlist Högna Egilssonar.

Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús kynnir í samstarfi við ARTECHOUSE upplifunarsýninguna HRINGÁTTA / CIRCULEIGHT. Einstök upplifun sem fangar kraftana í náttúru Íslands með framsækinni tækni í myndrænni miðlun, skemmtilegri gagnvirkni og heillandi tónlist Högna Egilssonar. Sýningin CIRCULEIGHT er gagnvirk sýning fyrir alla fjölskylduna. 

Á meðan á sýningunni stendur eru áhorfendur umvafðir þessum litríka og kvika heimi þar sem töfrandi tónlist Högna Egilssonar magnar upplifunina. Tónlist Högna ásamt nýjustu margmiðlunartækni innsetningar ARTECHOUSE, bjóða áhorfandanum í ógleymanlegt ferðalag.

Sýningin er opin daglega, 20 mínútna löng og hleypt er inn á hálftíma fresti – á heila tímanum og á hálfa tímanum.

Kaupa miða

Nánar um ARTECHOUSE

CIRCULEIGHT er fyrsta sýning ARTECHOUSE utan Bandaríkjanna og samstarfið við Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhús markar þeirra fyrstu skref í að deila sýn sinni á tæknidrifnar upplifanir í listum á alþjóðlegum vettvangi.

ARTECHOUSE er sjálfstæður nýsköpunarlisthópur sem vinnur í skurðpunkti listar, vísinda og tækni, með starfsstöðar í Washington DC, New York City, Miami og nú einnig í Reykjavík.

Hringátta