klassík, sígild og samtímatónlist, sinfóníuhljómsveit, tónlist
Lise De La Salle leikur Liszt - Sinfóníuhljómsveit Íslands
Verð
2.900 - 9.800 kr
Næsti viðburður
fimmtudagur 19. september - 19:30
Salur
Eldborg
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Antonio Méndez
hljómsveitarstjóri
Lise de la Salle
einleikari
Gabriella Smith
Tumblebird Contrails
Franz Liszt
Píanókonsert nr. 1
Antonín Dvorák
Sinfónía nr.7
Franski píanóleikarinn Lise de la Salle kemur nú fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands í annað sinn, en hún þreytti frumraun sína með hljómsveitinni 2010 þegar hún var rétt liðlega tvítug. Tónlistargagnrýnandi Morgunblaðsins sagði hana þá hafa „öldungsþroska undir glitrandi virtúósayfirborði æskuhjúps.“ Það eru sannarlega kostir sem nýtast vel í hinum glæsilega fyrsta píanókonsert Franz Liszt". Tónskáldið var sjálft fremsti píanóleikari Evrópu á 19. öldinni, stórstjarna sem áheyrendur flykktust á tónleika hjá. Hann hafði einstaka tilfinningu fyrir hljómi, litum og blæbrigðum píanósins og ekki er furða að verk hans séu á meðal burðarstólpa píanóbókmenntanna. Það tók Liszt 23 ár að fullvinna píanókonsertinn nr. 1 og var það að hluta fullkomnunarárátta sem tafði verkið en honum var mjög annt um að vera tekinn alvarlega sem þungavigtartónskáld. Það er óhætt að segja að píanókonsertinn hafi tryggt honum þann sess í tónlistarsögunni.
Á tónleikunum flytur hljómsveitin einnig sjöundu sinfóníu
Antoníns Dvorák, sem er ein sú dramatískasta úr hans
smiðju, enda vildi tónskáldið með henni „hreyfa við heiminum,“ eins og hann orðaði það sjálfur. Þótt sinfónían væri samin til frumflutnings í Lundúnum er tónmálið þrungið
þjóðlegum vísunum, innblásið af hugmyndum samtímamanna hans um sameinað Tékkland. Í upphafi tónleika flytur
hljómsveitin verkið Tumblebird Contrails eftir bandaríska
tónskáldið Gabriellu Smith frá árinu 2014. Verkið hefur á
síðustu árum verið flutt víða um heim, m.a. á tónleikum
Nóbelsverðlaunahátíðarinnar í Stokkhólmi á síðasta ári.
Í verkum sínum kannar Smith möguleika hljóðfæranna
af mikilli leikgleði og dregur áheyrendur inn í heillandi
hljóðlandslag innblásið af umhverfinu og náttúrunni
Viðburðahaldari
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Miðaverð er sem hér segir:
A
8.400 kr.
B
6.500 kr.
C
4.800 kr.
D
2.900 kr.
X
9.800 kr.
Dagskrá
fimmtudagur 19. september - 19:30
Eldborg
Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn tekur allt að 1600 manns í sæti. Í Hörpuhorni, við glerhjúpinn á annarri hæð, er unnt að vera með standandi kaffiveitingar eða móttökur tengdar Eldborg.
Hápunktar í Hörpu