klassík, sígild og samtímatónlist, sinfóníuhljómsveit, tónlist

Mozart og Schumann - Sinfón­íu­hljóm­sveit Íslands

Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða

Verð

2.900 - 9.800 kr

Næsti viðburður

fimmtudagur 17. október - 19:30

Salur

Eldborg

Tomáš Hanus
hljómsveitarstjóri 

Stefán Jón Bernharðsson
einleikari 

Béla Bartók
Tónlist fyrir strengi, slagverk og selestu

Wolfgang Amadeus Mozart
Hornkonsert nr. 4

Robert Schumann
Sinfónía nr. 4

Líkt og svo mörg tónverka Roberts Schumann á fjórða sinfónían sér djúpar og ástríðufullar rætur í einkalífi tónskáldsins. Hann hóf að semja hana skömmu eftir langþráð brúðkaup sitt og Clöru Wieck og fékk hún frumgerð verksins í 22 ára afmælisgjöf. Sinfónían var langt á undan sinni samtíð og var þar tekið stórt stökk frá hinu hefðbundna klassíska formi. Hún féll því ekki í kramið hjá áheyrendum í fyrstu, og lagði Schumann hana til hliðar. Hann samdi tvær sinfóníur til viðbótar áður en verkið birtist aftur í endurskoðaðri mynd árið 1851 og hlaut þá einróma lof. 

Á þessum tónleikum er það einn fremsti hljómsveitarstjóri Tékklands, Tomáš Hanus, sem stýrir þessu öndvegisverki, en Hanus er aðalhljómsveitarstjóri þjóðaróperunnar í Wales og steig síðast á svið í Eldborg fyrir réttu ári. Flutningur hans og Sinfóníuhljómsveitar Íslands á áttundu sinfóníu Dvoráks þótti einstaklega vel heppnaður. Einleikari í fjórða hornkonserti Mozarts er Stefán Jón Bernharðsson, leiðari horndeildar Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Stefán Jón er eftirsóttur á erlendri grundu og er reglulega boðið að vera gestaleiðari hjá erlendum hljómsveitum. Á þessu ári hefur hann m.a. leikið með La Scala óperunni og New York Fílharmóníunni. Stefán Jón hljóðritaði fjórða hornkonsert Mozarts með Sinfóníuhljómsveit Íslands árið 2000 en þetta verður í fyrsta sinn sem konsertinn hljómar í heild sinni á tónleikum hljómsveitarinnar. Líkt og aðrir hornkonsertar Mozarts var hann saminn fyrir Joseph Leutgeb, sem var ekki aðeins fjölskylduvinur Mozart -fjölskyldunnar heldur einnig fremsti hornleikari sinnar tíðar. Verkið er þannig bæði hávirtúósískt og fullt af innilegum, dillandi húmor, ekki síst í hinu fræga, leikandi skemmtilega lokarondói. 

Tónleikarnir hefjast á Tónlist fyrir strengi, slagverk og selestu eftir Béla Bartók þar sem úthugsuð pólýfónía, kraftmikil þjóðlagastef og dulúðug næturtónlist hljóma í bland. Einstakt andrúmsloft verksins hefur skipað því veglegan sess í samtímamenningunni, ekki síst í heimi kvikmyndalistarinnar.

Viðburðahaldari

Sinfóníuhljómsveit Íslands

Miðaverð er sem hér segir:

A

8.400 kr.

B

6.500 kr.

C

4.800 kr.

D

2.900 kr.

X

9.800 kr.

Eldborg

Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn tekur allt að 1600 manns í sæti. Í Hörpuhorni, við glerhjúpinn á annarri hæð, er unnt að vera með standandi kaffiveitingar eða móttökur tengdar Eldborg.