klassík, sígild og samtímatónlist, sinfóníuhljómsveit, tónlist

Yo-Yo Ma leikur Elgar - Sinfón­íu­hljóm­sveit Íslands

Verð

5.900 - 15.900 kr

Næsti viðburður

fimmtudagur 24. október - 19:30

Salur

Eldborg

Eva Ollikainen
hljómsveitarstjóri 

Yo-Yo Ma
einleikari 

Söngflokkurinn Hljómeyki
Stefan Sand
kórstjóri 

Hildur Guðnadóttir
Fact of the Matter 

Edward Elgar
Sellókonsert 

Ígor Stravinskíj
Petrushka

Bandaríski sellóleikarinn Yo-Yo Ma er einn þekktasti núlifandi hljóðfæraleikari heims og koma hans því sannkallaður stórviðburður í íslensku tónlistarlífi. Hann hefur gefið út yfir 120 hljóðritanir og hlotið Grammy-verðlaunin 19 sinnum, auk fjölda annarra verðlauna. Áhrif hans ná langt út fyrir tónlistarheiminn en hann hefur um áratugaskeið nýtt tónlistina í baráttu fyrir friði og samvinnu og hefur til að mynda verið einn af friðarsendiboðum Sameinuðu þjóðanna frá árinu 2006. 

Á þessum tónleikum leikur Yo-Yo Ma hinn áhrifamikla sellókonsert Elgars með Sinfóníuhljómsveit Íslands undir stjórn Evu Ollikainen, aðalhljómsveitarstjóra sveitarinnar. Verkið var samið skömmu eftir lok heimsstyrjaldarinnar fyrri og felur í sér sáran söknuð eftir liðnum tíma. Konsertinn er margbrotin flétta sigurs og sorgar, ljóðrænu og ómstríðu - eins konar trúarjátning til listarinnar frammi fyrir eyðileggingu stríðsins. 

Fact of the Matter eftir Hildi Guðnadóttur var frumflutt á BBC Proms tónlistarhátíðinni árið 2022. Hildur hefur sagt verkið vera viðbragð við þeirri sundrung sem ríkir milli fólks í veröld þar sem allir hafa sína eigin skoðun á staðreyndum. „Við erum í afturför og í stað þess að taka höndum saman virðumst við hafa meiri áhuga á viðurkenningu þess að við höfum rétt fyrir okkur,“ sagði Hildur í viðtali eftir frumflutninginn. Tónleikunum lýkur með svítum Stravinskíjs úr ballettinum Petrushku. Petrushka er ómótstæðilega skemmtilegur ballett þar sem heyra má í mótun þá kraftmiklu höfundarrödd Stravinskíjs sem síðar átti eftir að umbylta tónlistarsögunni til frambúðar.


Viðburðahaldari

Sinfóníuhljómsveit Íslands

Miðaverð er sem hér segir:

A

13.900 kr.

B

9.900 kr.

C

7.900 kr.

D

5.900 kr.

X

15.900 kr.

Dagskrá

fimmtudagur 24. október - 19:30

Eldborg

Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn tekur allt að 1600 manns í sæti. Í Hörpuhorni, við glerhjúpinn á annarri hæð, er unnt að vera með standandi kaffiveitingar eða móttökur tengdar Eldborg.