klassík, sígild og samtímatónlist, sinfóníuhljómsveit, tónlist

Yo-Yo Ma og Kathryn Stott - Dúó tónleikar

Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða

Verð

4.900 - 13.900 kr

Næsti viðburður

laugardagur 26. október - 20:00

Salur

Eldborg

Yo-Yo Ma selló 

Kathryn Stott
píanó

Gabriel Fauré
Berceuse 

Antonín Dvorák
Songs My Mother Taught Me 

Sérgio Assad
Menino 

Nadia Boulanger
Cantique

Gabriel Fauré
Papillon 

Dmitríj Shostakovitsj
Sónata fyrir selló og píanó í d-moll 

Arvo Pärt
Spiegel im Spiegel

César Franck
Sónata í A-dúr fyrir fiðlu og píanó

Yo-Yo Ma er einn þekktasti sellóleikari samtímans. Hann hefur á löngum og glæsilegum ferli hrifið áheyrendur um allan heim með heillandi túlkun sinni, óaðfinnanlegri tækni og miklum persónutöfrum, auk hinnar brennandi ástríðu sem hann hefur fyrir tónlistinni og mætti hennar til að koma góðu til leiðar í heiminum. Eftir tónleika Ma með Sinfóníuhljómsveit Íslands gefst áheyrendum hér einstakt tækifæri til að kynnast hinni hliðinni á þessum einstaka tónlistarmanni þar sem hann leikur litríka og hrífandi efnisskrá fyrir selló og píanó með samstarfskonu sinni til margra ára, Kathryn Stott. Stott er þekkt um allan heim sem einn hugmyndaríkasti og fjölhæfasti píanóleikari Breta, og hefur Washington Post haft á orði að hún sé „jafnoki Yo-Yo Ma og leiki á píanóið með eftirtektarverðum sérkennum.” Yo-Yo Ma og Kathryn Stott hafa átt farsælt samstarf um árabil, leikið saman á fjölda tónleika og sent frá sér verðlaunaðar hljóðritanir. Þessir tónleikar eru hluti af yfirstandandi tónleikaferðalagi þeirra þar sem þau leika í mörgum af helstu tónleikasölum heims, til dæmis í Barbican Centre, Konserthuset í Stokkhólmi, Fílharmóníunni í Berlín, Herkulessal í München og Fílharmóníunni í París. Þau hafa einnig haldið tónleika í þekktustu tónleikahúsum heims eins og Walt Disney Hall í Los Angeles og Carnegie Hall í New York. 

Verkin á efnisskrá þessa óviðjafnanlega dúós spanna allt frá nítjándu öldinni til þeirrar tuttugustu og fyrstu. Þar er meðal annars að finna hina tilfinningaþrungnu sellósónötu Dmitríj Shostakovitsj og hina hrífandi fögru fiðlusónötu Césars Franck leikna á selló. Þá hljóma nokkur yndisfögur og íhugul smáverk í útsetningum fyrir selló og píanó

Viðburðahaldari

Sinfóníuhljómsveit Íslands

Miðaverð er sem hér segir:

A

10.900 kr.

B

8.900 kr.

C

6.900 kr.

D

4.900 kr.

X

13.900 kr.

Eldborg

Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn tekur allt að 1600 manns í sæti. Í Hörpuhorni, við glerhjúpinn á annarri hæð, er unnt að vera með standandi kaffiveitingar eða móttökur tengdar Eldborg.