jólatónleikar, rokk og popp, tónlist

Jól í Eldborg - jóla­perlur Frostrósa

Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða

Verð

5.990 - 15.990 kr

Næsti viðburður

föstudagur 20. desember - 17:30

Salur

Eldborg

Töfrar Frostrósa munu svífa yfir Eldborg á ný í desember.

Búðu þig undir ógleymanleg Jól í Eldborg. Stórsöngkonurnar Margrét Eir, Hera Björk og Dísella munu flytja helstu jólaperlur Frostrósa á einstökum jólatónleikum í Eldborgarsal Hörpu í desember. Öll umgjörð verður hin glæsilegasta og með þeim verða á sviði einvala hljómsveit, strengjasveit, dýrindis kórar og frábærir gestir. Tónlistarstjóri er Karl Olgeirsson og um leikstjórn sér Birna Björnsdóttir. Sérstakur gestur er Stefán Hilmarsson.

Þær Heru og Margréti þarf vart að kynna. Þær hafa verið vinkonur í yfir 30 ár og voru þær söngkonur sem oftast heiðruðu svið Frostrósa. Nú bætist svo Grammy verðlaunahafinn Dísella Lárusdóttir við sem aðalsöngkona en hún var einn gesta tónleikanna í fyrra. Dísella kom fram með Frostrósum árin 2008 og 2011 þar sem hún skapaði ógleymanlegt augnablik er hún flutti dúett með Garðari Thór Cortes beint frá New York.

Þessar frábæru söngkonur ætla á ný að töfra fram einstök augnablik er þær leiða viðstadda inn í fallegan jólaheim. Flest okkar hér á Íslandi þekkjum Frostrósatónleikana sem haldnir voru ár hvert í 12 ár samfleytt frá 2002-1013. Yfir 30.000 manns sóttu tónleikana árlega þegar mest var og eigum við mörg þaðan ljúfar minningar. Lögin lifa áfram og hvert mannsbarn þekkir lög eins og Dansaðu vindur, Hugurinn fer hærra og Af álfum svo nokkur séu nefnd.

Sjáumst í hátíðarskapi í Eldborg föstudaginn 20. desember. Þetta verður ógleymanleg upplifun.

https://www.facebook.com/frostrosir/Fylgið Frostrósum á Facebook en þar verður hægt að skyggnast á bakvið tjöldin við undirbúning tónleikanna og rifjuð verða upp skemmtileg augnablik úr sögu Frostrósa.

Viðburðahaldari

Frost

Miðaverð er sem hér segir:

A

14.990 kr.

B

12.990 kr.

C

10.990 kr.

D

7.990 kr.

X

15.990 kr.

E

5.990 kr.

Eldborg

Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn tekur allt að 1600 manns í sæti. Í Hörpuhorni, við glerhjúpinn á annarri hæð, er unnt að vera með standandi kaffiveitingar eða móttökur tengdar Eldborg.