börn og fjölskyldan, maxímús, ókeypis viðburður
Fjölskyldudagskrá Hörpu: Skoðunarferð með Maxímús
Verð
0 kr
Næsti viðburður
sunnudagur 24. nóvember - 10:00
Salur
Framhús
Athugið! Vegna mikillar eftirspurnar hefur annarri skoðunarferð með Maxímús verið bætt við sama dag klukkan 10:00. Nánari upplýsingar hér að neðan.
Ingibjörg Fríða leiðir skoðunarferð fyrir yngstu gesti Hörpu í fylgd fullorðinna í leit að Maxímús Músíkús. Við förum um ýmsa sali, króka og kima Hörpu og veltum fyrir okkur hvort þeir séu ákjósanlegir staðir fyrir litla mús að búa á – Maxímús Músíkús er svo sannarlega langminnsti íbúi sem skráður er til heimilis í Hörpu.
Skoðunarferðin er um það bil hálftími að lengd.
Aðgangur er ókeypis en bóka þarf miða þar sem fjöldi þátttakenda er takmarkaður. Tveir fullorðnir að hámarki mega fylgja hverju skráðu barni.
Smelltu hér fyrir skráningu í skoðunarferð klukkan 10:00
Smelltu hér fyrir skráningu í skoðunarferð klukkan 11:00 (UPPBÓKAÐ)
Smelltu hér fyrir skráningu á biðlista fyrir ferð kl 11:00
Aðgengi
Viðburðurinn fer fram á íslensku.
Viðburður hentar börnum á öllum aldri.
Skoðunarferð fer fram í opnum rýmum og sölum Hörpu þar sem gert er ráð fyrir aðgengi að lyftum gesti sem þess óska.
Nánari upplýsingar um heimsóknir í Hörpu og aðgengismál má finna hér.
Við viljum upplýsa gesti um að ljósmyndari á vegum Hörpu gæti verið viðstaddur viðburðinn. Ef foreldrar eða forráðamenn vilja ekki að myndir af börnum þeirra birtist í umfjöllun um viðburðinn á miðlum Hörpu þá biðjum við ykkur vinsamlegast um að láta starfsfólk eða ljósmyndarann vita á staðnum eða í gegnum netfangið markadsdeild@harpa.is.
Viðburðahaldari
Harpa
Miðaverð er sem hér segir:
Dagskrá
sunnudagur 24. nóvember - 10:00
sunnudagur 24. nóvember - 11:00
Hápunktar í Hörpu