tónlist

Rósa Guðrún – Drangar útgáfutónleikar
Verð
5.900 kr
Næsti viðburður
laugardagur 15. mars - 20:00
Salur
Kaldalón
Rósa Guðrún - Drangar útgáfutónleikar
Rósa Guðrún Sveinsdóttir er lagasmiður, söngkona, saxófónleikari og flautuleikari.
Hún fagnar útgáfu annarar sólóplötu sinnar, sem ber nafnið Drangar, með tónleikum í Kaldalóni í Hörpu þann 15.mars kl.20:00. Platan verðu flutt í heild sinni fyrir hlé en eftir hlé verður haldið uppá 10 ára útgáfuafmæli fyrstu plötunnar Rósu, Strengur Stranda.
Tónlist og textar á báðum plötum er innblásin af náttúrunni og mannlífinu í Árneshreppi á Ströndum, þaðan sem Rósa Guðrún er ættuð.
Flytjendur eru
Rósa Guðrún Sveinsdóttir - baritónsaxófónn, flauta og söngur
Daníel Helgason - gítar
Birgir Steinn Theodórsson - kontrabassi
Matthías Hemstock - slagverk
Una Sveinbjarnardóttir - fiðla
Helga Þóra Björgvinsdóttir - fiðla
Þórunn Ósk Marinósdóttir - víóla
Þórdís Gerður Jónsdóttir - selló
Tónleikarnir eru styrktir af Menningarsjóði FÍH, Ýli og Tónlistarsjóði.
Viðburðahaldari
Rósa Guðrún Sveinsdóttir
Miðaverð er sem hér segir:
A
5.900 kr.
Dagskrá
Hápunktar í Hörpu